ráðstafanir í ríkisfjármálum.
Herra forseti. Ég veit ekki hvað hv. þingmaður átti við þegar hún talaði um að ákveðins viðhorfs gætti í garð ferðaþjónustunnar sem atvinnugreinar. Ég er alla vega mikill áhugamaður um ferðaþjónustu, átti fyrir margt löngu sæti í Ferðamálaráði, var varaformaður þess um nokkurt skeið og tók þátt í uppbyggingu og stefnumótun í ferðamálum og ferðaþjónustu á þeim tíma. Ég tel eins og hv. þingmaður, hygg ég, mikilvægt að efla ferðaþjónustuna. Hún er þegar orðin mjög mikilvæg atvinnugrein í samfélagi okkar og gjaldeyrisskapandi þannig að ég held að ekki þurfi að verða ágreiningur um það.
Ég vil taka undir orð sem fallið hafa í þessari umræðu að ferðaþjónustan er fullvaxta atvinnugrein í íslensku efnahags- og atvinnulífi í dag og hún getur að sjálfsögðu tekið þátt í að byggja undir stoðir samfélags okkar með því að skila í sameiginlegan sjóð okkar landsmanna eins og aðrar atvinnugreinar; hún á að mínu viti ekki að þurfa sérstaka meðhöndlun hvað það snertir. En auðvitað geta menn alltaf rætt um það af því að það er staðreynd að ýmsar undirgreinar í ferðaþjónustu búa við mismunandi skattlagningu í dag og auðvitað mætti velta því fyrir sér hvort þar þyrfti að verða meiri samræming og einhver stefnumótun hvað það snertir. Ég ætla ekki að útiloka að það gæti orðið viðfangsefni á næstunni. Eftir sem áður finnst mér ferðaþjónustan, sem einn af burðarásum í efnahags- og atvinnulífi okkar, vel vera fær til að skila inn í okkar sameiginlega sjóð sínum skerf líkt og aðrar atvinnugreinar gera.
Ég bendi enn á ný á þessa skýrslu. Þar hefur verið gerð greining á þróun verðs í gistingu fyrir og eftir breytinguna sem varð á virðisaukaskattinum 2007. Hún bendir til þess að lækkunin þá, úr 14% í 7%, hafi ekki skilað sér (Forseti hringir.) í verði til ferðamanna heldur orðið eftir í greininni. Það finnst mér að nefndin verði alla vega að skoða betur.