ráðstafanir í ríkisfjármálum.
Virðulegi forseti. Það er góð ástæða til að ræða þetta mál. Þegar ég kom hér inn í salinn fyrr í kvöld og sá að hæstv. fjármálaráðherra var ekki á staðnum hugsaði ég með mér að full ástæða væri til að kalla eftir viðveru hans þannig að hann væri á staðnum til að fylgja úr hlaði fyrsta ríkisfjármálafrumvarpi sínu. Þegar ég var ráðherra og var að leggja fram stór frumvörp var alla vega gengið ríkt eftir því að þingmenn næðu eyrum ráðherrans. Svo ákvað ég, af því það er sumarbyrjun og við erum að hefja nýtt þing og vegna þess hversu margir stjórnarliðar eru hér í salnum, að láta kyrrt liggja og gera ekki sérstaka kröfu um nærveru hæstv. fjármálaráðherra. Ég veit hann er í húsinu og vona að hann komi hingað inn eftir því sem líður á ræðurnar, því að það er full ástæða til að ræða þetta mál út frá því hvað það segir um samstöðu í þessum sal um það hvert verið er að fara með efnahagsmál þjóðarinnar.
Ég hef rakið það fyrr, í umræðu um stefnuræðu í gær, og í fyrirspurn til hæstv. forsætisráðherra í morgun, að það ber nýrra við og það eru ákveðin tímamót í því fólgin að fjármálaráðherra lýðveldisins komi með frumvarp hér inn í þingið sem fær eins tryllingslega falleinkunn frá fjárlagaskrifstofunni og þetta frumvarp hefur fengið — þ.e. verið er að afnema skatta án þess að nokkuð komi í staðinn.
Mig langar að útskýra af hverju þetta er svona mikil grundvallarbreyting. Það er vegna þess að þessi vinnubrögð fóru mjög illa með íslenskt samfélag. Og það var þjóðarsamstaða um að binda endi á vinnubrögð af þessu tagi sem leiddi okkur út úr hruninu. Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar stóð að því að hefja samvinnu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn haustið 2008. Samstaðan sem þar myndaðist snerist um það að við mundum fórna öllu til til að tryggja jöfnuð í ríkisfjármálum og að þjóðin ætti allt undir að ná því markmiði og að ná því hratt, vegna þess að annars yrðum við þrælar erlendra lánardrottna um ókomin ár.
Framsóknarflokkurinn veitti þessu plani hlutleysi sitt og greiddi fyrir framgangi þess. Vinstri grænir voru á móti þessu plani í upphafi (Gripið fram í: En greiddu fyrir framgangi þess.) en greiddu fyrir framgangi þess og komu síðan í ríkisstjórn með okkur í Samfylkingunni og fylgdu því eftir. Um það var rík samstaða hér á síðasta kjörtímabili að við ynnum áfram að því að uppfylla það fyrirheit að ná jöfnuði í ríkisfjármálum. Ég kom sem félagsmálaráðherra inn í þennan þingsal með frumvarp sem mig langaði ekkert að koma með. Það fól í sér skerðingu á réttindum, óhjákvæmilegar aðgerðir til að ná umræddu markmiði. Stjórnarandstaða þess tíma, sjálfstæðismenn sérstaklega og framsóknarmenn, sýndu þann stórhug að gera sér ekki úr því neinn sérstakan pólitískan mat. Þeir gerðu sér grein fyrir ástandinu og að við þyrftum að fórna þessu til til að tryggja jöfnuð í ríkisfjármálum.
Við lögðum fram hugmyndir um skattahækkanir. Af því það er nú í tísku að tala illa um stjórnarandstöðu síðasta kjörtímabils, og hún á náttúrlega margt illt umtal skilið, ætla ég að segja henni það til hróss að almennt séð var hér mikill skilningur og stuðningur gagnvart því að við þyrftum að leggja fram hugmyndir um skattahækkanir og menn brugðu ekki fyrir þær fæti. Allt var þetta vegna þess að við vorum að reyna að ná þessu markmiði og það var tímasett, við ætluðum að ná því 2013.
Það var síðan mat á árinu 2011, meðal annars vegna þess að hagtölur voru daufar, fjárfesting lítil, að við ættum að fara hægar og fresta þessu markmiði til 2014. En markmiðið um jöfnuð í ríkisfjármálum hefur verið lykilatriði okkar allt til þessa dags. Þess vegna til dæmis fórum við í Samfylkingunni ekki í það að framkvæma ýmislegt sem hefði verið okkur í lófa lagið að framkvæma rétt fyrir kosningar og slá þannig kosningavíxil. Við fórum í kosningar berandi byrðar og berandi á bakinu óvinsældir vegna skerðinga á almannatryggingakerfinu frá kjörtímabilinu, vegna þess að við töldum okkur ekki fært að skrifa ávísanir fram í tímann og við vildum ekki hvika frá markmiðinu.
Í aðdraganda kosninganna töluðu allir um efnahagslegan stöðugleika, það töluðu allir inn í þau almennu markmið. Það ber því nýrra við að fjármálaráðherra komi hér, á sama degi og hann er að kveinka sér undan því að hann sé að uppgötva 30 milljarða gat á ríkisútgjöldum, og auki á það gat. Það hefðu fjármálaráðherrar síðasta kjörtímabils aldrei leyft sér. Það má segja: Bíddu, er ekki rétt að afnema þennan skatt? Er hann ekki íþyngjandi? Jú, jú, það er alveg rétt, en við höfum lagt á verri álögur og við höfum gripið til kostnaðarsamari aðgerða á sparnaðarhliðinni en þessarar.
Þessi skattur var vissulega íþyngjandi þegar hugmyndin var fyrst lögð fram vegna þess að hann átti þá að taka gildi strax. Aðilar í ferðaþjónustu voru búnir að verðleggja þjónustu sína fram í tímann og það var ósanngjarnt gagnvart þeim. En því var mætt. Gildistökunni var frestað. Gildistakan er miðuð við að koma á eftir höfuðferðamannatímanum núna í haust. Efnisrökin fyrir því að falla frá þessari skattheimtu umfram aðrar eru ekkert sérstaklega sterk vegna þess að fyrirvarinn sem búið er að gefa á þessari hækkun á virðisaukaskatti er það langur að öll fyrirtæki hafa tækifæri til þess að verðleggja sig til samræmis. Það er góð spurning sem hér kemur upp: Ef þessi skattlagning er núna dregin til baka, hvað þá, ef fyrirtækin eru þegar búin að verðleggja sig í samræmi við skattlagninguna?
Það er mikilvægt að draga saman samhengi stærðanna. Þessi skattahækkun, þegar hún er að fullu komin til framkvæmda, á að skila í ríkissjóð röskum 1.500 milljónum. Þegar ég var félagsmálaráðherra og þurfti að taka erfiðar ákvarðanir þá var ein af þeim erfiðari að meta hvar ætti að bera niður í skerðingum í almannatryggingakerfi. Ömurlegt hlutskipti. En ein af þeim breytingum sem þar voru ákveðnar og voru sársaukafullar, skerðing á grunnlífeyri, skilaði 1.600 milljónum, rétt rúmlega því sem menn eru að ákveða að innheimta ekki hér. Það er því stór ákvörðun þegar menn ákveða að auka á gatið og það er fráhvarf frá þjóðarsamstöðu um jöfnuð í ríkisfjármálum sem við náðum í kjölfar hrunsins — að hætta að senda víxla á framtíðina, að hætta að vera með óábyrga ríkisfjármálastefnu og að slá nýjan takt.
Það skiptir líka máli að hafa í huga í þessu samhengi að þessi breyting er ekki ein og ekki stök. Það hefur komið fram af hálfu fjármálaráðherra að hann vilji lækka fleiri skatta, en hann hefur ekki komið hér inn í þingið með nýja ríkisfjármálaáætlun til að standa undir því. Hann sagði hér áðan — og nú gengur hann í salinn og ég fagna því — að ný ríkisfjármálaáætlun kæmi í haust samhliða fjárlögum eins og venja væri til.
Þegar við tókum við vorið 2009 var það ekki fyrsta verk nýrrar ríkisstjórnar á sumarþingi að koma með minnislista fyrir ráðherra og dubba hann upp í gervi þingsályktunartillögu eins og forsætisráðherra hefur gert varðandi þessi skuldamál — lögð hefur verið fram þingsályktunartillaga sem vekur athygli fyrir efnisrýrð og er í reynd bara minnislisti fyrir ráðherra um það hvað þeir eigi að gera hvenær. Við komum hér inn með skýrslu um stöðu ríkisfjármála og áætlun til næstu fjögurra ára á sumarþingi.
Mér finnst það grundvallarveikleiki í þessu máli að fjármálaráðherra sýni þinginu ekki þá virðingu, þegar hann segist standa frammi fyrir 30 milljarða gati, að leggja fram plan um það hvernig loka eigi því gati í stað þess að leggja það fram sem sitt fyrsta mál, og fyrsta þingmál nýrrar ríkisstjórnar, að stækka það. Þetta er slíkur grundvallarveikleiki í nálgun að ekki er hægt að kalla þetta neitt annað en söguleg lausatök í ríkisfjármálum. Við viljum auðvitað að hann sýni þinginu þá virðingu að segja okkur hvenær búast megi við jöfnuði í ríkisfjármálum.
Ég spurði í dag og ég fékk ekki skýr svör frá honum. Ég spurði hæstv. forsætisráðherra í fyrirspurnatíma í dag og hann svaraði bara út í hött eins og það kæmi þinginu, stjórnarandstöðunni, og þjóðinni ekki við hvort stefnan væri jöfnuður í ríkisfjármálum eða ekki. Ég veit ekki alveg á hvaða plánetu þeir menn búa sem halda að þeir geti talað af viti og af trúverðugleika um afnám hafta í þessu landi ef þeir treysta sér ekki til að segja við markaðinn hvort þeir stefna að jöfnuði í ríkisfjármálum eða ekki. Því ef menn ætla ekki að standa við markmið um jöfnuð í ríkisfjármálum er tómt mál að tala um að afnema höft. Það munu allir peningar sogast út um leið og höftum er lyft. Þetta er því grundvallaratriði fyrir efnahagslega velsæld þjóðarinnar og fyrir efnahagslegan stöðugleika.
Það er einfaldlega ekki hægt að sætta sig við að ríkisstjórn komi og brjóti, án þess eiginlega að átta sig á því að því er virðist, niður þá samstöðu sem þó hefur myndast um jöfnuð í ríkisfjármálum sem höfuðmarkmið efnahagsstefnunnar og ríkisfjármálastefnunnar. Ég segi það aftur vegna þess að hæstv. fjármálaráðherra er nú kominn í salinn að ég var nefnilega að rifja það upp hvernig við náðum þó á síðasta kjörtímabili almennri samstöðu um það markmið. Ég var að hrósa stjórnarandstöðu síðasta kjörtímabils fyrir það að hún stóð ekki í málþófi gegn erfiðum niðurskurðaraðgerðum og hún stóð ekki í málþófi gegn flestum skattaákvörðunum okkar. Það var vegna þess að allir gerðu sér grein fyrir því hve það var mikilvægt hvað varðar þjóðaröryggi að ná jöfnuði í ríkisfjármálum; það var okkur öllum sameiginlegt.
Þess vegna ítreka ég kröfuna á hæstv. fjármálaráðherra sem ég setti fram í dag og fékk ekki skýr svör við og sem ég setti fram við hæstv. forsætisráðherra í dag og fékk bara svör í kerskni. Það er eðlileg krafa að hann komi hér með nýja ríkisfjármálaáætlun og segi okkur hvenær ná eigi jöfnuði í ríkisfjármálum áður en hann leggur fram frumvörp um að falla frá tekjuöflunaraðgerðum sem þegar hafa verið samþykktar, veikja tekjuöflunargrunninn án þess að til þess reki einhverjar nauðir.
Það er alveg sama hvaða skoðanir menn kunna að hafa á þessari tilteknu skattbreytingu þegar hún var lögð á, hvort hún væri skynsamleg eða ekki, þá er búið að ákveða þessa skattbreytingu með mjög löngum fyrirvara. Þeir sem eru í greininni hafa getað verðlagt hana inn í áætlanir sínar. Það eru því engin ríkari rök fyrir þessari breytingu í virðisaukaskattskerfinu en öllum öðrum.
Því segi ég að lokum: Það hlýtur að vera krafa til þessarar ríkisstjórnar að hún standi sig að þessu leyti þó að hún virðist ekki vera verkmikil og menn hafi ekki mikið rætt á öllum þessum vikum í sumarbústöðunum. Það hlýtur að vera hægt að gera þá kröfu til hennar að hún geri eins og við gerðum á sumarþingi 2009, leggi fram fjögurra ára plan í ríkisfjármálum þannig að við vitum í hvaða umgjörð við erum að vinna. Ætlar ríkisstjórnin að ná jöfnuði á næsta ári eins og við höfum lagt upp með? Er það enn þá markmiðið? Vilja þeir hvika frá því? Hversu langt ætla þeir þá að hvika frá því? Er það 2015? Þetta eru engin aukaatriði, þetta eru lykilatriði. Þessar ákvarðanir eru forsenda þess að hægt sé að tala af einhverju viti hér um önnur atriði í grundvallarumgjörð efnahagsmálanna, svo sem afnám hafta.
Þjóðaröryggi er í húfi. Efnahagslegt öryggi þjóðarinnar er í húfi. Þetta er nefnilega hluti af stórri mynd. Þetta er ekki lítið mál. Við verðum að ætlast til þess að þessi ríkisstjórn virði þá þjóðarsamstöðu um efnahagslegan stöðugleika og jöfnuð í ríkisfjármálum sem þó hefur myndast eftir hrun.