142. löggjafarþing — 3. fundur,  11. júní 2013.

meðferð einkamála.

2. mál
[20:57]
Horfa

Katrín Júlíusdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma fram með þetta mál. Mér finnst í því góð hugsun. Mig langar að spyrja tveggja spurninga.

Nú hafa dómarar lýst því yfir að þessi mál hafi verið í forgangi hingað til. Er hæstv. ráðherra til í að svara þeirri spurningu hversu mikið til viðbótar hún telur að framlagning svona lagafrumvarps muni geta hraðað slíkum málum umfram það sem dómarar hafa hingað til fullyrt að hægt sé að gera?

Í greinargerðinni kemur beinlínis fram að hér sé verið að veita dómurum styrka stoð til að taka þessi mál fram yfir önnur mál. Þá langar mig að heyra hjá hæstv. ráðherra, sem hlýtur að hafa lagt á það mat eða tekið það með einhverjum hætti saman að það fer enginn fyrir dómstóla að gamni sínu. Þar eru mörg viðkvæm og erfið mál sem menn vilja fá skjóta úrlausn á. Ég velti því fyrir mér hvort hæstv. ráðherra geti sagt okkur það hér hversu mörg mál gætu þurft að bíða vegna þessara mála og hvers eðlis þau eru. Oft eru erfið mál fyrir dómi eins og kynferðisbrotamál og önnur slík mál, mörg persónuleg og óþægileg mál sem menn vilja kannski fá skjóta úrlausn á.

Ég vænti þess því að ráðuneytið hafi með einhverjum hætti tekið saman hvaða áhrif þetta mál gæti haft á önnur mál sem fyrir dómstólunum eru.