atvinnu- og orkustefna ríkisstjórnarinnar.
Virðulegi forseti. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar má vissulega finna mörg fögur fyrirheit um að bæta lífsgæði landsmanna og stuðla að aukinni atvinnuuppbyggingu, menntun, nýsköpun og að náttúruvernd og auðlindanýting fari saman. Gott og vel með það og þetta getur allt blessast ef vel er á málum haldið. En ég hef ákveðnar áhyggjur af því sem lesa má á milli línanna í stjórnarsáttmálanum af því að það eru alltaf merkin sem sýna verkin. Mér finnst fyrstu skref ríkisstjórnarinnar ekki benda til þess að hún ætli að horfa til uppbyggingar á fjölbreyttu atvinnulífi miðað við það að strax er farið að tala um að rífa upp rammaáætlun og svo er það þessi ofuráhersla hægri manna á stóriðju eins og ekkert annað geti þrifist.
Við vinstri menn erum í sjálfu sér ekki á móti stóriðju sem slíkri. Hún getur verið meðfram öðru. En hér á Íslandi erum við búin að binda raforku okkar yfir 80% í stóriðju. Er ekki nóg komið? Eigum við ekki að fylgja eftir þeim góðu áformum sem eru í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að stuðla að nýsköpun og styðja við sprotafyrirtæki, skapandi greinar og annað það sem ungt fólk í dag er að mennta sig til? Eigum við ekki bara að styðja við það unga fólk í landinu sem vill sjá fjölbreytt atvinnulíf? Það vill sjá að náttúran fái að njóta vafans. Eigum við ekki að hætta að eltast við gamaldags stóriðjudrauma sem menn vita að er ekki nútíminn? Getum við ekki bara sammælst um það?
Það veldur mér áhyggjum að heyra að Hellisheiðarvirkjun stendur ekki undir þeirri nýtingu sem gerð var krafa um. Það verðum við að horfa á þegar við horfum á það svæði sem um ræðir. Ég treysti því (Forseti hringir.) að núverandi ráðherra verði svolítið framsýnn en verði ekki í baksýnisspeglinum með gamaldags stóriðjuhugmyndir.