veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi á þskj. 15 sem er 15. mál. Um er að ræða breyting á lögum nr. 74/2012, um veiðigjöld.
Herra forseti. Sjávarútvegur á Íslandi er í fremstu röð og hefur löngum verið ein helsta atvinnu- og útflutningsgrein þjóðarinnar. Um leið og mikilvægt er að tryggja að afrakstur auðlindarinnar skili sér í sem mestri hagsæld allra íbúa landsins er nauðsynlegt að tryggja sjávarútveginum starfsumhverfi sem stuðlar að öryggi, atvinnu, vexti og framsókn greinarinnar og tækifærum til fjárfestinga.
Okkur er öllum kunnugt um þær þrætur sem hafa staðið um hvernig rétt og sanngjarnt sé að innheimta gjald af afrakstri sjávarútvegsfyrirtækja. Ég geri mér jafnframt fulla grein fyrir því að þegar ólík sjónarmið rekast á getur verið erfitt að fara bil beggja.
Síðasta ríkisstjórn setti lög um veiðigjöld sem reynst hafa óframkvæmanleg vegna tæknilegra en ekki síður efnislegra ágalla. Í almennum athugasemdum með frumvarpinu sem hér er mælt fyrir er gerð grein fyrir aðdraganda þess. Þar segir, með leyfi forseta, að með frumvarpinu sé „ekki aðeins gefið svigrúm til endurskoðunar laganna á næsta reglulega löggjafarþingi í ljósi stefnumótunar ríkisstjórnarinnar og þeirrar gagnrýni sem hefur að þeim beinst, heldur einnig brugðist við þeim erfiðleikum sem hafa komið í ljós við framkvæmd þeirra“.
Það er fullljóst að jafnvel þótt engin ríkisstjórnaskipti hefðu orðið væri þingheimur einmitt þessa dagana við umræðu um frumvarp til laga um breytingar á veiðigjöldum. Þegar frumvarpið var samþykkt á Alþingi sumarið 2012 lá þegar fyrir margþætt gagnrýni á það reikniverk sem lögin grundvallast á. Hér á ég ekki við þá grundvallarforsendu að eðlilegt sé að sjávarútvegurinn greiði auðlindagjald til þjóðarinnar, eiganda fisveiðiauðlindarinnar, en því er ég sammála. Ég á við þá efnislegu ágalla eða skekkjur sem eru innbyggð í lögin. Það er mál margra að lögin séu haldin það miklum ágöllum að ekki hefði verið forsvaranlegt að byggja álagningu veiðigjalda á þeim óbreyttum.
Það helsta sem bent hefur verið á í þessu sambandi er að lögin séu hugsanlega ekki nægilega skýr um forsendur útreiknings á veiðigjöldum. Þannig megi halda því fram að þau uppfylli ekki þær kröfur sem gera verður samkvæmt stjórnarskrá lýðveldisins til skattlagningarheimilda hvað varðar skýrleika. Það tengist þeim kröfum sem stjórnarskráin setur við framsali skattlagningarvalds frá Alþingi til stjórnvaldshafa. Margt fleira mætti tilfæra í þessu samhengi.
Því var haldið fram að vegna þess hvernig veiðigjöld eru ákveðin nemi þau í ákveðnum tilvikum hærri fjárhæð en sem nemur öllum hagnaði vegna veiða tiltekinna fisktegunda og í versta falli meira en öllum hagnaði ákveðinna fyrirtækja. Um þetta hefur auðvitað verið mikil óvissa og ráðuneytið sem og veiðigjaldanefnd hafa ekki getað svarað því vegna skorts á gögnum hver álagning veiðigjalda ætti að vera fyrir komandi fiskveiðiár, sem gerði allar rekstraráætlanir sjávarútvegsfyrirtækja mjög erfiðar.
Þá hefur verið bent á að sérstakt veiðigjald sé ákveðið á grundvelli bæði rentu í fiskveiðum og fiskvinnslu en með því séu útgerðir skattlagðar vegna hagnaðar óskyldra aðila. Eitt af því sem hefur verið til skoðunar í ráðuneytinu er hvernig fara skuli með tekjur af sölu aflahlutdeilda. Af lögunum virðist mega ráða að þegar fyrirtæki draga úr umsvifum eða fara úr rekstri með sölu hlutdeilda muni þær sölutekjur sem falla til leiða til hækkunar á álögðu sérstöku veiðigjaldi. Í þessu fælist að tekjur af sölu aflahlutdeilda hjá þeim sem hætta í útgerð mundu leggjast óbeint á alla gjaldendur sérstaks veiðigjald án þess að hlutaðeigandi nyti nokkurs af tekjunum sem færu út úr greininni. Um veruleg áhrif gæti verið að ræða en árið 2011 munu tekjur af sölu aflahlutdeilda hafa numið milli 7 og 8 milljörðum kr. Þessi villa í reikniverkinu, sem svo má nefna, ræðst af því að við setningu laga um veiðigjöld var gert ráð fyrir að ráðist yrði í tekjuskattsbreytingar í þá átt að greidd kvótaleiga og niðurfærsla á kaupverði heimilda kæmi til frádráttar sem kostnaður. Til þess hefur hins vegar ekki komið.
Meðal þess sem var gagnrýnt við ákvæði laganna var að engin leið var fyrir gjaldendur veiðigjalda að fá nákvæmar upplýsingar um annars vegar tekjur og gjöld og hins vegar rekstrarfjármuni allra fyrirtækja sem leggja skyldi til grundvallar þegar stofn til útreiknings veiðigjalda yrði fundinn út. Í þessu felst að gjaldendur veiðigjalda eða samtök þeirra hafa í raun og veru lítil tækifæri til að leiðrétta forsendur álagningar gagnvart sér, koma með fyllri upplýsingar o.s.frv.
Enn má nefna þá gagnrýni að greiningu á afkomu einstakra veiðigreina og fisktegunda væri ábótavant með reiknireglum laganna. Talið var að hætta væri á því að gjöld vegna metins hagnaðar í einni grein eða fisktegund yrðu að einhverju leyti lögð beint eða óbeint á aðra grein eða fisktegund. Í þessu sambandi voru einkum áhyggjur af notkun þorskígilda, sem eru viðmiðin um innbyrðis verðmæti fisktegunda en taka ekki tillit til mismunandi kostnaðar við veiðar. Að auki er í þeim skekkja sem ræðst af því að stundum er vinnsluvirði að hluta til inni í verðmæti til grundvallar útreikningi þorskígildis. Sams konar gagnrýni beindist að skiptingu, afkomu sem og greiningu rekstrarfjármuna milli útgerðarflokka samkvæmt lögunum, þ.e. veiða og vinnslu botnfisks og uppsjávarfisks. Ráðuneytið hefur leitast við að bregðast við þessari gagnrýni. Sem fyrsta lið í því má skoða þær tillögur um setningu svokallaðra sérstakra þorskígilda sem frumvarp það sem ég nú mæli fyrir hefur að geyma, en ég vík að þeim síðar.
Hér hef ég nefnt helstu sjónarmið í þeirri gagnrýni sem hefur beinst að lögunum en í sjálfu sér má efast um tilgang þess að dvelja lengi við þau.
Við þetta má loks bæta að lögin hafa reynst óframkvæmanleg fyrir veiðigjaldanefnd sem skal reikna sérstakt veiðigjald eins og rakið er í athugasemdunum með því frumvarpi sem ég mæli hér fyrir. Nefndin ræður ekki yfir nauðsynlegum upplýsingum til starfa sinna vegna þess að lögin voru ófullkomin og tæknilega gölluð hvað varðar heimildir til öflunar upplýsinga og að hluta til miðlunar þeirra til stjórnvalda, þ.e. á milli embættis ríkisskattstjóra, Hagstofu Íslands og veiðigjaldanefndar. Nefndin vakti athygli ráðuneytisins á þessu fyrst í desember sl. og síðan hefur verið leitað leiða til úrlausnar en án árangurs þrátt fyrir að sérstakur starfshópur hafi unnið gott starf til að leita leiða til lausna á þeim vanda sem nefndin stóð frammi fyrir. Þetta vissi fyrri ríkisstjórn en brást ekki við, þó ekki væri nema við þeim tæknilegu ágöllum sem hindra framkvæmd laganna.
Efnislega er sú aðferðafræði við útreikninga veiðigjalda sem með lögunum var lögfest ekki til þess fallin að búa sjávarútveginum starfsumhverfi sem stuðlar að nauðsynlegum framgangi og vexti greinarinnar. Eigi afrakstur auðlindar að skila sér til þjóðarinnar allrar er mikilvægt að stjórnvöld hafi það að markmiði að skapa atvinnuvegum vænlegt starfsumhverfi. Það er ljóst að sú ofurálagning sem samþykkt var í gildandi lögum um veiðigjöld mun ekki skapa sjávarútveginum þau skilyrði sem til þarf til að nýsköpun og fjárfesting sé innan greinarinnar og gengur of nærri þeim atvinnuvegi sem er einn af okkar helstu burðarstoðum. Það er engra hagur að fá vænar tekjur af einni atvinnugrein í afmarkaðan tíma leiði það til þess að rekstrarskilyrði greinarinnar verði óbærileg og óhagræði valdi því að greinin verði ekki starfhæf á hagkvæman máta til framtíðar.
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, Laugarvatnsyfirlýsingunni, kemur fram að lögin um veiðigjöld verði tekin til endurskoðunar. Í ljósi þess skamma tíma sem til stefnu er fram að álagningu veiðigjalda komandi fiskveiðiárs, en nauðsynlegt er að undirbúningur að álagningu þeirra hefjist nú í júlí, mæli ég fyrir breytingu á núgildandi lögum. Um leið vil ég leggja ríka áherslu á að hér er eingöngu um ráðstöfun fyrir næsta fiskveiðiár að ræða, á meðan umræðunni um veiðigjöld er haldið áfram og hún leidd til lykta.
Þegar er hafinn undirbúningur varðandi fyrirkomulag áframhaldandi vinnu um álagningu veiðigjalda í ráðuneyti sjávarútvegsmála. Leitast verður við að skoða og taka sjónarmið ólíkra hagaðila til álita en um leið er ljóst að veiðigjöldin þurfa að vera hófstilltari en ákvörðuð voru í tíð síðustu ríkisstjórnar.
Lagt er til að áfram verði innheimt svokallað almennt veiðigjald og sérstakt veiðigjald. Almenna veiðigjaldinu er sem fyrr ætlað að standa undir rekstri á stofnunum og umsýslu tengdri sjávarútvegi. Lagt er til að áfram verði 9,5 kr. á hvert sérstakt þorskígildiskíló. Horfið er frá því að hið svonefnda sérstaka veiðigjald verði ákvarðað út frá reiknaðri rentu á þorskígildiskíló eftir veiðiflokkum. Þetta hefur annars vegar, eins og fram hefur komið, reynst óframkvæmanlegt og út frá þeim áætlunum sem gerðar voru leiðir þetta hins vegar til óeðlilega hárrar gjaldtöku með verulega neikvæðum áhrifum. Þess í stað er lagt til að gjaldið verði fastsett, annars vegar 7,38 kr. á hvert sérstakt þorskígildiskíló í botnfisksveiðum og hins vegar 38,25 kr. á hvert sérstakt þorskígildiskíló í uppsjávarveiðum.
Með þessu verður tekið tillit til ólíkrar afkomu veiðanna en lækkun á verði þorsks á mörkuðum meðal annarra þátta hefur haft neikvæð áhrif á afkomu botnfisksveiða, en bætt afkoma á uppsjávarveiði fyrirtækja leiðir til hækkunar á álagningu þar miðað við þá tölu sem var á yfirstandandi fiskveiðiári. Þrátt fyrir þennan krónumun á gjaldi á kíló ganga áætlanir út frá því að álagningin hafi jöfn áhrif á báða flokka þegar litið er til áhrifa á afkomu. Áætlað er að með þessari álagningaraðferð skili veiðigjöldin í heild sinni 9,8 milljörðum kr. Hér er um að ræða öllu varlegri gjaldtöku en áður hafði verið gert ráð fyrir næsta fiskveiðiár.
Í þessu sambandi má vekja athygli á fleiri þáttum. Áætlað er að tekjuskattsgreiðslur sjávarútvegsfyrirtækja rekstrarárið 2012 séu á bilinu 8,5–9,5 milljarðar. Greiðslurnar hafa aukist undanfarin ár úr því að vera 1,5 milljarðar á rekstrarárinu 2009. Þessi aukning á tekjuskattsgreiðslum skilar sér í auknu fjárstreymi til ríkissjóðs. Þá hafa skuldir sjávarútvegsfyrirtækja lækkað umtalsvert undanfarin fimm ár samkvæmt gögnum Hagstofu Íslands.
Í allri umræðunni um veiðigjöld má ekki gleyma veigamiklum þætti skattgreiðslna frá sjávarútvegi og jákvæðum áhrifum þess fyrir þjóðarbúið allt að þær fari hækkandi. Á grundvelli þessara upplýsinga má jafnframt ætla að sjávarútvegurinn sé í stöðu til að standa undir hóflega reiknuðu veiðigjaldi og geti á þessum erfiðu tímum í rekstri ríkissjóðs skilað meiru til samfélagsins en ella án þess að rekstrargrundvelli fyrirtækjanna sé í stórum stíl stefnt í hættu.
Virðulegi forseti. Lagt er til að ákvæði um svokallað frítekjumark og lækkun á veiðigjaldi vegna skuldsetningar af kvótakaupum standi óbreytt að svo komnu. Með því er tekið tillit til smærri aðila og verr staddra fyrirtækja.
Í þeirri breytingu á lögum sem ég hér mæli fyrir er að finna nokkra tæknilegri þætti sem ég tel rétt að tæpa á. Gagnrýnd hefur verið notkun þorskígilda við niðurjöfnun veiðigjalda á þann hátt að stuðullinn sé óeðlilega hár á þeim fisktegundum sem nær eingöngu eru unnar um borð í fiskiskipum. Með þeirri breytingu sem ég mæli fyrir er leitast við að mæta þessari gagnrýni með því að reikna sérstakan þorskígildisstuðul fyrir veiðigjöld þar sem verðmæti og magn þess afla sem unninn er um borð í fiskiskipum er undanskilinn við útreikning á stuðlinum og gjaldið leggst því jafnar á allar fisktegundir óháð útgerðarmynstri.
Þá er mælt fyrir að gefin verði heimild til að fresta gjalddaga á veiðigjöldum í tegundum sem ekki eru stundaðar veiðar á allt árið. Sú gagnrýni hefur komið fram að það krefjist kostnaðarsamrar fjárbindingar að standa straum af greiðslu veiðigjalda áður en tekjur af veiðunum falli til. Með þessu er markmiðið að geta frestað gjalddögum, sérstaklega á veiðum sem eru árstíðabundnar, þar til ætla má að tekjustreymið sé hafið af veiðunum.
Að lokum, líkt og áður kom fram, mæli ég fyrir því að lög um veiðigjöld verði í heild sinni tekin til endurskoðunar og tillögur lagðar fram á Alþingi, löggjafarþingi 2013–2014, og vil á ný vekja athygli á því að hér er eingöngu um einskiptisálagningu að ræða sem bráðabirgðaráðstöfun.
Virðulegi forseti. Á fylgiskjali með frumvarpi þessu er að finna kostnaðarumsögn fjármála- og efnahagsráðuneytisins um frumvarpið og ætluð áhrif þess á tekjur ríkissjóðs. Að öðru leyti vísa ég til þeirra athugasemda sem fylgja frumvarpinu en þar er ítarlega fjallað um og gerð grein fyrir efni þess.
Herra forseti. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til 2. umr. og hv. atvinnuveganefndar.