veiðigjald.
Virðulegur forseti. Forgangsröðun Framsóknarflokksins er skýr. Útgerðarmenn fá milljarðaeftirgjöf strax en skuldug heimili eru sett í nefnd. Þetta skýrir ráðherrann með því að gera þurfi rekstrarumhverfið vænlegt. Heyr á endemi. Hvergi í landinu er rekstrarumhverfi jafn vænlegt og í útgerðinni nú um stundir. Þar drýpur einfaldlega smjör af hverju strái.
Hér er gengið lengra í því að lækka gjöldin en hæstv. ráðherra taldi sjálfur vera hóflegt þegar við áttum hér í viðræðum um hvert gjaldið ætti að vera og hann var í stjórnarandstöðu. Ég hlýt að spyrja: Hvers vegna er gengið lengra í dekrinu við LÍÚ en hv. þáverandi þingmaður taldi tilefni til? Ég spyr sérstaklega þegar til þess er horft að enn er ríkissjóður rekinn með halla og því eru almannahagsmunir augljóslega ekki hér í öndvegi heldur fyrst og fremst sérhagsmunirnir.
Ég hlýt líka spyrja, fyrst þetta frumvarp er komið hér inn, um milljarðaeftirgjöf fyrir útgerðarmenn, hvað líði frumvarpi um leiðréttingu fyrir aldraða og öryrkja sem allir flokkar lofuðu fyrir kosningar. Af hverju hefur það ekki fengið sömu hraðafgreiðslu í ríkisstjórninni? Hæstv. ráðherra er nýkominn af ríkisstjórnarfundi. Hann getur kannski upplýst okkur um hvort það mál hafi verið afgreitt. Ég held að það væri mjög mikilvægt að því væri dreift hér í dag því að á stuttu sumarþingi þurfum við að ná að afgreiða það mál. Eða hvað dvelur það? Eru deilur um það í ríkisstjórninni meðan þetta mál, eftirgjöf á sköttum til útgerðarmanna, fær hraðafgreiðslu á fyrstu dögum nýrrar ríkisstjórnar. Mér finnst það ekki vel af stað farið, virðulegur forseti.