142. löggjafarþing — 6. fundur,  14. júní 2013.

veiðigjald.

15. mál
[14:54]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir það sem mér finnst vera góð og málefnaleg umræða almennt um veiðigjöld og stöðuna í íslenskum sjávarútvegi. Það er hárrétt sem hv. þm. Ásmundur Friðriksson kom inn á í ræðu sinni að auðvitað snýst þetta allt um að bæta afkomu fyrirtækjanna í landinu þannig að þau geti á endanum borgað betri laun. Það skilar sér best til samfélagsins að starfsemin sé það öflug að hún geti, þegar upp er staðið, borgað betri laun. Hann bar saman hvað það mundi þýða fyrir samfélagið ef fólk sem er að vinna fisk, þessa verðmætu útflutningsafurð okkar, væri á sömu launakjörum og almennt gerist og gengur í t.d. orkufrekum iðnaði. Þetta væri mikil bylting.

Lykilatriðið er hvernig ríkið eða hið opinbera kemur að þessum málum. Sú skattlagning sem ríkið ákveður að taka á hverjum tíma af atvinnulífinu spilar mjög stóran þátt í afkomu fyrirtækjanna og getu þeirra til að borga hærri laun, til þess að geta farið í fjárfestingar o.s.frv.

Vegferð þeirrar ríkisstjórnar sem fór frá völdum í vor var ömurleg að þessu leyti og ekki síst í því máli sem við fjöllum um núna. Það er alveg ljóst að hún gerði mikil mistök í aðkomu sinni að sjávarútveginum í þeim málum sem hún lagði fram um fiskveiðistjórnarkerfið okkar almennt og þar með veiðileyfagjald.

Það má segja að hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon og hv. þm. Kristján L. Möller hafi staðfest þetta í sínum ræðum. Hv. þm. Kristján L. Möller var formaður atvinnuveganefndar á síðasta kjörtímabili. Hann gaf þessu kerfi algjöra falleinkunn í ræðu sinni áðan og sagði að fara þyrfti allt aðrar leiðir. Ég tek undir það með honum. Þetta er umræða sem oft átti sér stað innan atvinnuveganefndar og hann þekkir þetta mál mjög vel og alla þá miklu umræðu sem átti sér stað á síðasta kjörtímabili um þetta mál í nefndinni.

Hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon sagði að málið væri óþroskað og þyrfti að þróa það miklu betur. Það er hárrétt. Þetta væri erfiðast fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki, og við vitum það. Við vitum að afleiðingarnar af því kerfi sem hér var innleitt eru hvað erfiðastar fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki og fyrirtæki, jafnvel upp í stærri fyrirtæki, í bolfisksvinnslu. Það má segja að fyrirtæki í uppsjávarveiðum komist miklu betur frá þessu og geti ráðið betur við þetta. Það skapast eingöngu af þeim sérstaklega góðu aðstæðum sem hafa verið í þeirri grein á undanförnum fáum árum.

En gæfan er fallvölt á þeim vettvangi, það þekkjum við. Í dag er staðan þannig að mikil óvissa er fram undan í uppsjávarveiðum. Það má segja að við höfum dottið í lukkupottinn þegar makríllinn fór að venja komur sínar á Íslandsmið og þar höfum við verið að skapa útflutningsverðmæti upp á tugi milljarða á undanförnum árum. Við höfum fengið góðar loðnuvertíðir á síðustu tveim, þrem árum. Það er algjör óvissa varðandi loðnuna næsta vetur og makríllinn er eitt stórt spurningarmerki líka. Sú grein, uppsjávarveiðarnar, hefur því búið við kannski hvað mestar sveiflur í íslenskum sjávarútvegi.

Hv. þm. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir talaði áðan um að núverandi stjórnvöld vildu leggja niður veiðileyfagjaldið. Það er dæmi um ómálefnalega umræðu, sem ég vona að við getum lagt af á nýju þingi. Enginn flokkur hefur talað um að leggja af veiðileyfagjöld. Útgerðin er alveg sátt við að borga einhver veiðileyfagjöld. Um það ríkir almenn sátt. Það voru núverandi stjórnarflokkar sem á sínum tíma innleiddu þá hugmyndafræði að leggja ákveðin veiðileyfagjöld eða skatt á sjávarútvegsfyrirtæki til þess að þau greiddu eitthvað fyrir aðgang sinn að auðlindinni.

Það er rétt sem einnig kom fram áðan að þetta spratt ekki upp úr engu. Þetta spratt auðvitað upp úr þeirri illu nauðsyn að takmarka þurfti veiðar og fara að hagræða í greininni. Við vorum komin í mjög erfiða stöðu upp úr 1980. Ofveiði var mikil úr helstu nytjastofnum okkar og það stefndi í algjört óefni. Þá var sest niður og farið yfir hvað við ættum að gera. Við urðum að takmarka veiðarnar. Sú einfalda aðferðafræði var notuð að við skiptum þeim takmörkuðu veiðiheimildum, sem þá var ákveðið að úthluta, á þá aðila sem höfðu fjárfest í greininni og voru til staðar í henni.

Á mörgum árum, nokkuð mörgum árum, varð þetta til þess að mikil hagræðing hófst. Framsalið varð heimilt 1991. Á þeim tíma vorum við með um 2.550–2.560 fiskiskip á Íslandi og mörg þúsund sjómenn. Á tíu ára tímabili fækkuðum við fiskiskipum niður í á milli 1.100 og 1.200 og sjómönnum með tilheyrandi hætti. Þetta var hagræðingin.

Hverjir greiddu fyrir þessa hagræðingu? Það var útgerðin sjálf. Hún greiddi í svokallaðan Úreldingarsjóð og þeir peningar voru notaðir til að kaupa skip sem ekki voru endurnýjuð. Við gætum enn verið með 2.500–2.600 fiskiskip til þess að veiða þær aflaheimildir sem við höfum, en mundi það bæta afkomu okkar með tilheyrandi miklu meiri fjölda í sjómannastétt? Mundi það bæta afkomu sjómanna eða fyrirtækja? Yrðu verðmætin eitthvað meiri úr þeim takmörkuðu gæðum sem við höfum úr að spila? Nei.

Hagræðingin tókst vel og það má segja að af þessu tilefni kemur manni í hug sagan um litlu gulu hænuna. Það voru kannski ekkert margir sem voru tilbúnir á sínum tíma til að fjárfesta í sjávarútvegi þegar taprekstur var viðvarandi og ekki álitlegt að setja fé í þann rekstur. En það eru margir sem tóku ekki þátt í að baka brauðið sem vilja borða það í dag.

Það er í raun grátlegt að það skuli hafa verið í nokkuð mörg ár djúpstæður ágreiningur um þennan mikilvæga málaflokk í samfélaginu og hvað umræðan hefur oft verið á miklum villigötum og menn talað í pólitískum frösum. Þetta er okkur mun mikilvægara mál en svo að við höfum efni á því til lengri tíma að fara þannig með málaflokkinn. Það setur mikla ábyrgð á hendur okkar alþingismanna að koma málaflokknum í var, ná um hann einhverri sátt í samfélaginu, sátt við greinina, sátt við þjóðina um það hvernig við ætlum að haga þessum málum til lengri tíma. Það er okkur öllum mikilvægast, það er íslensku samfélagi það mikilvægasta sem við getum gert og er verkefni okkar alþingismanna á kjörtímabilinu að reyna að ná um þetta eins mikilli sátt og hægt er.

Ég fór yfir það áðan hvaða einkunn forustumenn úr hæstv. síðustu ríkisstjórn gáfu sjálfum sér. Það var eftir fjögurra ára starf. Þeir höfðu heilt kjörtímabil þar sem þeir lögðu ítrekað fram mál sem voru algjörlega út úr kortinu, var algjörlega ljóst að voru andvana fædd. Það var alveg sama hvaða sérfræðingar eða hagsmunaaðilar komu fyrir atvinnuveganefnd og lýstu skoðunum sínum, lögðu fram reikninga og útreikninga. Á þetta var blásið í mörgum tilfellum. En þeir sýndu fram á þær afleiðingar sem við stöndum frammi fyrir í dag, þ.e. ef við höldum áfram á þessum nótum í innheimtu veiðileyfagjalds eins og lagt var upp með munum við keyra mörg fyrirtæki í þrot. Þá verður mun valdafrekari samþjöppun í greininni vegna þess að það verða fyrst og fremst litlu fyrirtækin, meðalstóru fyrirtækin sem stunda bolfisksútgerð sem munu verða fyrir barðinu á þessu. Það verður að bregðast við.

Þessi ríkisstjórn hefur ekki setið marga daga en þetta er það sem hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra er að gera með frumvarpinu, hann er að reyna að bregðast við. Við í atvinnuveganefnd eigum eftir að vinna með það, fara yfir það og fara yfir þá útreikninga sem þarna liggja að baki. Við eigum eftir að hitta aðila úr greininni, hagsmunaaðila, og aðra til að glöggva okkur svolítið betur á málinu.

Þetta er ákveðin bráðabirgðaaðgerð sem gripið er til og þegar frumvarpið er lesið liggur alveg fyrir hver hugsunin er. Hún er nákvæmlega sú að mæta þeirri gagnrýni sem komið hefur fram, og sem var staðfest af hv. þm. Steingrími J. Sigfússyni áðan, og reyna að mæta litlu og meðalstóru fyrirtækjunum. Það er vissulega gert í þessu frumvarpi eins og það liggur fyrir, á kostnað þeirra fyrirtækja sem eingöngu eru í uppsjávarveiðum. Að margra mati er gengið þar of langt. Það verður verkefni okkar í nefndinni að skoða hvort hægt sé að dreifa þessum byrðum betur, hvaða afleiðingar þetta kunni að hafa fyrir fyrirtækin og byggðarlögin sem þar liggja undir, vegna þess að þarna eiga öflugar og sterkar sjávarútvegsbyggðir mikilla hagsmuna að gæta og fólkið sem þar býr. Það verður okkar að skoða þetta og reyna að nálgast málið þannig að við getum náð víðtækari sátt.

Grunntónninn er aftur á móti sleginn, við ætlum að lækka þessi gjöld. Við teljum að of langt hafi verið gengið. Það höfum við sagt allan tímann, það er ekkert nýtt í því. Ég sagði áðan að núverandi stjórnvöld nálguðust verkefnið af ákveðinni auðmýkt og með sömu áherslum og við settum allt síðasta kjörtímabil. Við vitum að verkefnið er flókið og líta þarf víða til að ná þeirri sátt sem ég er að tala hér fyrir og við munum leggja okkur fram um það.

Í grundvallaratriðum teljum við að of langt hafi verið gengið, að gjaldið sé of hátt. Hér erum við að stíga skref til að lækka það. Við erum að stíga mjög stór skref gagnvart þeim fyrirtækjum sem hvað verst hafa orðið fyrir barðinu á núverandi kerfi og við munum beita okkur fyrir því að þetta verði á endanum gjald sem sé eðlilegt og sanngjarnt að sjávarútvegurinn greiði og geti orðið sátt um, gjald sem dregur ekki þrótt úr fyrirtækjunum, gerir ekki gæfumuninn um það hvort fyrirtækin geti til lengri tíma fjárfest, hækkað launin hjá starfsfólki sínu, gert betur við það og unnið að blómlegri starfsemi. Markmið okkar verður að vinna þannig að lausn þessara mála.

Við munum taka tillit til þeirra viðvarana sem við munum fá inn á borð okkar og reyna að mæta þeim sjónarmiðum eins og hægt er. Í svona miklu máli er eflaust til of mikils mælst að allir verði sáttir þegar upp verður staðið. Það er ljóst að allir verða að gefa eftir þegar svo miklir hagsmunir eru undir eins og í þessu máli. Þannig verðum við að nálgast málið í pólitískri umræðu. Við megum ekki nota þessa atvinnugrein til að slá ryki í augu fólks sem þekkir eðlilega ekki starfsumhverfi sjávarútvegsfyrirtækja í smáatriðum. Við megum ekki nota þetta til að slá pólitískar keilur. Við verðum öll að vera tilbúin til að horfa fram hjá okkar ýtrustu kröfum og leggja okkur fram um að ná sátt.

Hér er verið að stíga fyrsta skrefið. Það er ekki lokaskref á þessu kjörtímabili, langt í frá, mikil vinna er eftir. Ég vona að við getum haft hana sem mest í faglegum og góðum farvegi frá og með næsta hausti.