142. löggjafarþing — 6. fundur,  14. júní 2013.

veiðigjald.

15. mál
[15:20]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég tek það alveg fullgilt hjá hv. þm. Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur varðandi umræðuna um að fella niður veiðigjaldið eða að lækka það. Þetta hefur svo sem áður heyrst í umræðunni, talað þannig eins og það sé vilji núverandi stjórnarflokka að fella þessi gjöld niður, en það er bara alls ekki þannig. Umræðan er fyrst og fremst um hversu há við getum haft þau, hvernig við getum innheimt þau eftir afkomu greinarinnar og hinna mismunandi sviða innan hennar á hverjum tíma.

Hv. þingmaður segir að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn tali um að lækkun muni ógna þeim árangri sem hafi náðst í íslensku efnahagslífi og vitnað er í hagfræðing sem starfar erlendis, sem telur að jafnvel hefði átt að hækka veiðigjöldin. Ég er algjörlega ósammála þessu.

Ég tel reyndar og við, ég held að það sé sammerkt með okkur í meirihlutaflokkunum, að ef eitthvað er ógn við stöðugleika og uppbyggingu í íslensku samfélagi þá sé það skattstefna síðustu ríkisstjórnar. Við höfum þá skoðun að þegar of langt er gengið í þeim efnum skili það ekki þeim árangri sem menn hafi væntingar um. Við teljum miklu frekar að ef skattlagningu er haldið í ákveðnu jafnvægi þannig að ákveðin sátt sé um greiðslu skatta stuðli það í fyrsta lagi að betri skattskilum, það stuðli að auknum umsvifum í samfélaginu, það stuðli að aukinni atvinnusköpun og verðmætasköpun og það sé miklu hagfelldara fyrir íslenskan ríkissjóð en sú leið sem hér var vörðuð.

Ég leyfi mér bara að segja að þær fullyrðingar sem komu fram hjá hagfræðingnum (Forseti hringir.) standist enga skoðun og eru algjörlega í ósamræmi við þá niðurstöðu sem við höfum fengið frá fjöldamörgum öðrum sérfræðingum.