veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég ætla ekki að eyða tíma mínum í að útskýra fyrir hv. þingmanni hvað umframhagnaður er, hann getur flett því upp, menn vita hvað það þýðir.
Menn segja að ekki hafi verið hægt að framkvæma þessa gjaldtöku í veiðileyfagjaldinu þar sem ekki liggi fyrir nægjanlegur grunnur til að byggja á hvað varðar upplýsingar frá ríkisskattstjóra og Fiskistofu og Hagstofunni. En ekki er þar með sagt að þurft hafi að lækka veiðigjald á bolfisksgeiranum eða hækka veiðigjald á uppsjávargeiranum. Hvaða forsendur og upplýsingar höfðu menn þá til þess að gera það? Hvað lá þar á bak við, hvaða vinna lá þar á bak við? Lá eitthvað þar á bak við? Ég vil fá að vita hvað lá þar að baki að menn skyldu geta dottið niður á nákvæmlega þessa tölu til lækkunar í bolfisksgeiranum og til hækkunar í uppsjávargeiranum. Voru einhverjar upplýsingar sem lágu fyrir þar?
Varðandi samþjöppun í greininni, að veiðigjaldið sem slíkt hefði orsakað samþjöppun í greininni hjá minni útgerðum, og þess vegna séu menn að létta svo mikið af þeim geira — ég kaupi bara ekki þá skýringu. Ég er talsmaður þess að við styðjum við smærri útgerðir og við getum gert það á margan hátt eins og fyrrverandi ríkisstjórn lagði til, að við kæmum upp öflugum leigupotti á kvótaþingi þar sem þessar minni útgerðir þyrftu ekki að vera leiguliðar og leigja af stærri útgerðum kvóta heldur gætu leigt hann beint af ríkinu. Þannig aðgerð er hægt að setja á fót til að styðja við minni útgerðir, svo að þær geti leigt á sanngjörnu verði af ríkinu en ekki á uppsprengdu verði af öðrum sem eru í greininni og gera út á það að leigja öðrum.