142. löggjafarþing — 7. fundur,  18. júní 2013.

ríkisfjármál.

[13:34]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Herra forseti. Mér finnst menn vera býsna borubrattir sem hér hafa lagt fram fjárlagafrumvörp ár eftir ár sem ekki hafa staðist, og munar þar hundruðum milljarða þegar allt er saman tekið frá árinu 2009, að geta ekki beðið þess að ný ríkisstjórn taki saman sína eigin langtímaáætlun í ríkisfjármálum sem lögð verður fram samhliða fjárlagafrumvarpi eins og tíðkast í haust og tekið síðan umræðuna um það hvert stefnir í ríkisfjármálum svona heilt yfir.

Ef menn eru að kalla eftir því að vita hvaða fyrirmæli eru gefin inn í ráðuneytin á þessum tímapunkti eru fyrirmælin þau að halda áfram að gæta ýtrasta aðhalds í rekstrinum. Áfram verður gerð hagræðingarkrafa á ráðuneytin fyrir almennan rekstur. En eins og hv. þingmaður kom inn á stefnir í að farið verði mjög hressilega fram úr þeirri áætlun sem menn höfðu fyrir yfirstandandi ár og samþykkt var með gerð fjárlaga undir lok síðasta árs.

Þetta er bara staðan og það kann vel að vera að mönnum þyki sárt að hún sé tekin saman og birt opinberlega en menn verða að þola að rætt sé um stöðuna eins og hún er. Hún er þannig að það voru teknar ákvarðanir eftir samþykkt fjárlaganna sem leiða til útgjaldaauka. Það hafa líka verið í farvatninu ýmiss konar hugmyndir sem mundu fela í sér enn frekari útgjaldaauka og svo voru í frumvarpinu forsendur sem ekki ganga eftir eins og til dæmis um hagvöxt. Menn verða að þola að þessi umræða sé tekin og ríkisstjórnin nýja mun samhliða gerð fjárlagafrumvarps (Forseti hringir.) koma með sína eigin langtímaáætlun í ríkisfjármálum.