breytt stefna Framsóknarflokksins í velferðarmálum.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég gat lesið úr orðum hennar að hún væri ekki sammála hv. formanni fjárlaganefndar og er það vel. En það er nú ekkert lítið ef formaður fjárlaganefndar, sem mótar stefnu fjárlaga fyrir næsta ár, og hæstv. ráðherra velferðarmála eru ekki á sömu línu. Þessir tveir aðilar hljóta að þurfa að tala saman og vera með sömu stefnu í málunum.
Ég gef ekki mikið fyrir það ef hv. formaður fjárlaganefndar er með allt aðra stefnu í ríkisfjármálum en hæstv. ráðherrar þessarar ríkisstjórnar. Menn þurfa að tala eitthvað saman á þeim bænum, sýnist mér, þ.e. að menn séu ekki að fara út og suður með hvað menn ætla að framkvæma og hvað verður til skiptanna á fjárlögum til velferðarmála.
Ég treysti því að hæstv. ráðherra standi fast á sínu því að hún hefur boðað það að hún ætli að leggja aukna fjármuni í að bæta elli- og örorkulífeyrisþegum það sem tapaðist vegna hrunsins, (Forseti hringir.) en mér heyrist á hv. formanni fjárlaganefndar að það sé ekki meiningin.