dreifiveita og raforka til garðyrkjubænda.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn og fyrir að vekja athygli á þessu máli sem mér er vel kunnugt, ekki bara í mínu nýja embætti heldur einnig af samskiptum mínum við garðyrkjubændur og talsmenn þeirra á síðasta kjörtímabili sem þingmaður Suðurkjördæmis, en þeir hafa verið duglegir að minna á sig. Þeir hafa þegar komið á fund til mín í ráðuneytinu og ég veit til þess að þeir hafa einnig heimsótt hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra vegna þessa máls.
Ég get upplýst að það er mikill vilji hjá mér og ég veit að það er mikill vilji hjá hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að koma til móts við þessa atvinnugrein vegna þess, eins og hv. þingmaður lýsti vel, að þetta er mjög mikilvæg atvinnustarfsemi. Garðyrkjubændur eru að gera þarna alveg skínandi góða hluti, hafa stóreflt framleiðsluna og eru að leggja grunn að fjölmörgum tækifærum sem við vitum öll að munu koma til með að skapa verðmæti, spara innflutning og tryggja að okkar góðu afurðir verði á boðstólum.
Varðandi spurninguna, sem hv. þingmaður nefndi um dreifiveiturnar sem þeir í uppsveitum Árnessýslu hafa verið að undirbúa, þá tel ég að það hafi verið hálfgert örþrifaráð hjá þeim sem varð ekki síst til að vekja athygli á þeirri skekkju sem hv. þingmaður fór vel yfir. Ég tel enga skynsemi í því að leggja og búa til annað kerfi til hliðar við það sem við höfum vegna þess að einn gallinn á því væri líka sá að það mundi hækka verðið til þeirra sem eftir yrðu í kerfinu þannig að af þessu hlytist ekkert hagræði. Ég tel (Forseti hringir.) sjálfsagt mál og hef í raun greint garðyrkjubændum (Forseti hringir.) frá því að við munum finna í sameiningu lausn (Forseti hringir.) á þeirra málum og tryggja rekstrarstöðu þeirra til framtíðar.