veiðigjald.
Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Helga Hjörvar fyrir ágæta ræðu og mikla yfirferð. Það skín í gegn að hann vill hafa gjaldið óbreytt. Nú er það þannig að gjaldið er byggt á gömlum upplýsingum, þetta er mjög mikið sovétkerfi, þetta er allt saman skipulagt ofan frá. Það er búið að ákveða að greinin eigi að hafa svo og svo mikla arðsemiskröfu, að hún eigi að skila svo og svo miklum arði og á það sem umfram er skuli lagt auðlindagjald.
Við byggjum sem sagt á gömlum tölum, við byggjum á því að horfa aftur í tímann, jafnvel tvö, þrjú ár aftur í tímann. Auðlindagjaldið er miðað við stöðu greinarinnar fyrir tveimur, þremur árum. Aðstæður úti í heimi breytast mjög hratt, í Evrópusambandinu og víðar þar sem lífskjör hafa versnað og við getum ekki lengur selt saltfiskinn og annað á jafn góðu verði.
Þá kem ég að spurningunni til hv. þingmanns: Hefur hann trú á markaði til þess að ákveða verð? Markaðurinn er öndvert við stjórnmálamennina og sovétið sem líta aftur í tímann. Hefur hv. þingmaður ekki trú á því að það væri betra að hafa markaðinn til að ákveða verðið eins og verð á brauði og öðru slíku, meira að segja bensíni? Finnst hv. þingmanni ekki þetta kerfi vera slæmt? Eru menn ekki núna að bjarga einhverju við vegna þess að menn horfa aftur í tímann þegar þeir ákveða veiðigjaldið en ekki fram í tímann eins og markaðurinn mundi gera?