142. löggjafarþing — 9. fundur,  20. júní 2013.

störf þingsins.

[11:02]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég hef áhyggjur af þeirri pólitísku óvissu sem aðgerðir hæstv. ríkisstjórnar í ríkisfjármálum skapa.

Forsvarsmenn hægri stjórnarinnar blésu fyrir rúmri viku til blaðamannafundar til að fara yfir þá stöðu sem tekin er út eftir þrjá fyrstu mánuði ársins. Þar var bent á að hugsanlega fari stofnanir fram úr fjárlögum, það sé hugsanlegt ef ekki verði gripið til ráðstafana. Staðreyndin er sú að á mánaðarfresti fáum við uppgjör sem gefur okkur þá ástæðu til að grípa til ráðstafana. Almenningur fékk þau skilaboð að þarna sé pottur brotinn, líklegt sé að farið verði fram úr fjárlögum og menn skuli undirbúa sig undir að velferðarþjónustan verði dregin enn meira saman eða almannaþjónustan í einhverri mynd.

Nú skyldi maður ætla, þegar ljóst er að þeir sem fara með eftirlitið á framkvæmd fjárlaga er Alþingi, ráðuneyti og síðan forstöðumenn stofnana, að blásið hefði verið strax í kjölfar blaðamannafundarins til fundar í fjárlaganefnd til að fara yfir stöðuna. Það var ekki gert, virðulegi forseti. Og þrátt fyrir ítrekaðar óskir er fundurinn haldinn viku síðar. Maður hefði líka haldið, virðulegi forseti, að hæstv. fjármálaráðherra hefði þá mætt á fundinn til að fara yfir þessa stöðu með þingmönnum, en það hefur hann ekki gert þrátt fyrir ítrekaðar óskir.