142. löggjafarþing — 9. fundur,  20. júní 2013.

stjórn fiskveiða.

3. mál
[12:25]
Horfa

Frsm. atvinnuvn. (Jón Gunnarsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, svokallaða framlengingu bráðabirgðaákvæða, frá atvinnuveganefnd.

Nefndin hefur fjallað um málið og fékk á fund sinn Arnór Snæbjörnsson og Jóhann Guðmundsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti. Þá bárust nefndinni umsagnir um málið frá Sjómannasambandi Íslands, Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, Landssambandi smábátaeigenda, Samtökum fiskframleiðenda og útflytjenda, Samtökum íslenskra fiskimanna og sameiginleg umsögn frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna, Samtökum atvinnulífsins og Samtökum fiskvinnslustöðva.

Alþingi hefur áður fjallað um frumvarp af sama meiði. Þannig innihéldu 3.–8. gr frumvarps sem síðar varð að lögum nr. 75/2012, um breytingu á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, 856. mál á 140. löggjafarþingi, ákvæði sambærilegs efnis og ákvæði frumvarpsins nú. Í grundvallaratriðum felur frumvarpið í sér að fiskveiðiárið 2013/2014 lúti stjórn fiskveiða sömu reglum og giltu fiskveiðiárið 2012/2013.

Á fundi nefndarinnar var nokkuð rætt um 1. gr. frumvarpsins og forsögu hennar. Kom það sjónarmið meðal annars fram að betur færi á að fundin yrði varanleg lausn á því ástandi sem kallað hefur á tilvist hennar. Eins og fram kom í framsöguræðu ráðherra standa væntingar til að stjórn fiskveiða verði skoðuð heildstætt á næsta löggjafarþingi og því fela ákvæði frumvarpsins aðeins í sér eins árs framlengingu ákvæða sem annars liðu undir lok á yfirstandandi fiskveiðiári.

Í ljósi þessa leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt. Undir frumvarpið skrifa Jón Gunnarsson, formaður atvinnuveganefndar, Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaformaður nefndarinnar, með fyrirvara, Haraldur Benediktsson 2. varaformaður, Ásmundur Friðriksson, Kristján L. Möller, með fyrirvara, Páll Jóhann Pálsson, Þorsteinn Sæmundsson og Þórunn Egilsdóttir. Hv. þm. Björt Ólafsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.