142. löggjafarþing — 10. fundur,  21. júní 2013.

breyting á stjórnarskrá og þjóðaratkvæðagreiðslur.

[11:05]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti. Enn er ósvarað spurningunum: Er það forgangsmál af hálfu hæstv. forsætisráðherra að lögfesta, hvort sem er með almennum lögum eða í stjórnarskrá, rétt kjósenda til að krefjast atkvæðagreiðslu um meiri háttar mál? Ef honum þykir 10% of lágt, þykir honum þá 15% hæfilegt? (Gripið fram í.) Og telur hæstv. ráðherra að einhver tiltekin mál eins og skattamál eða þjóðréttarsamningar eigi ekki heima í þjóðaratkvæðagreiðslu?

Virðulegur forseti. Í guðanna bænum, ekki skildi ég forsætisráðherra þannig að viðvaranir um kúgun meiri hlutans á minnihlutahópum væri tilvísun til Landssambands íslenskra útvegsmanna?