142. löggjafarþing — 10. fundur,  21. júní 2013.

breyting á stjórnarskrá og þjóðaratkvæðagreiðslur.

[11:06]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

Virðulegur forseti. Við þekkjum þessa leiki hv. þm. Helga Hjörvars mjög vel, þessar tilraunir til þess að koma eins og einni góðri setningu, „sándbæti“, í fréttirnar úr fyrirspurnatíma. Oft og tíðum virðast spurningarnar miklu frekar snúast um það sem hv. þingmaður vill koma í fyrirspurn sinni í fjölmiðla en raunverulegan áhuga á því að fá svar.

Ég hef útskýrt það fyrir hv. þingmanni að það þurfi að huga að ýmsu samhliða því þegar menn auka beint lýðræði. Ég held að hv. þingmaður sé sammála mér um að það þurfi að koma í veg fyrir að minni hluti í samfélaginu geti orðið fyrir barðinu á meiri hluta sem nýtir þetta fyrirkomulag. Það að gefa í skyn að með því sé verið að tala um einhverja tiltekna aðila sem hv. þingmaður leggur hart að sér þessa dagana að sverta er að mínu mati ómaklegt. Að sjálfsögðu er ég ekki að gefa það í skyn, að sjálfsögðu er ég ekkert að tengja þetta saman.