fjárfestingaráætlun fyrri ríkisstjórnar.
Virðulegur forseti. Það gladdi óneitanlega grallaraspóann í sálinni á þessum sólskinsdegi að heyra hæstv. forsætisráðherra, þrátt fyrir þjóðmenningarlegar áherslur, nota orðið „sándbæt“ hér í pontu. [Hlátur í þingsal.] Mér finnst það fyrirspurnarefni sem ég legg fram núna verðskulda mjög mörg sándbæt. Mig langar að spyrja hæstv. forsætisráðherra um fjárfestingaráætlun fyrri ríkisstjórnar og hver örlög hennar verða.
Við í Bjartri framtíð höfðum ríka aðkomu að því máli, mjög ríkt frumkvæði að því að fjárfestingaráætlunin var gerð. Hún snýst um það að á þremur árum er áætlað að verja 22 milljörðum af arði fjármálafyrirtækja sem eru í eigu ríkisins til fjárfestinga til að efla vaxandi atvinnugreinar í ferðaþjónustu, í skapandi greinum, í tækni- og hugverkaiðnaði, í grænum iðnaði og til byggingar nauðsynlegra fasteigna, m.a. til húsafriðunarsjóðs, og hins vegar að fjármagna með 17 milljörðum á næstu þremur árum af sérstöku veiðigjaldi gerð ýmissa samgöngumannvirkja, eflingu rannsóknar- og tækniþróunarsjóða og sóknaráætlun landshluta.
Það var mér og okkur í Bjartri framtíð mikið ánægjuefni þegar þessi fjárfestingaráætlun rataði í öllum megindráttum inn í fjárlög yfirstandandi árs. Áætlunin er því hafin og það er von mín að henni verði haldið áfram. Mér sýnist ég sjá þessar áherslur í stjórnarsáttmálanum.
Ég vil spyrja hæstv. forsætisráðherra: Verður fjárfestingaráætluninni haldið við eða jafnvel gefið í í þeim efnum?