142. löggjafarþing — 10. fundur,  21. júní 2013.

meðferð einkamála.

2. mál
[14:29]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni svörin. Það er þá fram komið að við erum sammála um að það voru annmarkar á því frumvarpi sem flutt var hér á síðasta kjörtímabili um flýtimeðferð og að ýmsar leiðir aðrar eru færar til að flýta málum. Auðvitað er lögð á það áhersla í dómskerfinu að flýta þeim og fá aðila til að stytta fresti.

Ég var ekki að spyrja um Lýsingarmálið eitt og sér og bið hv. þingmann afsökunar á því ef það hefur skilist þannig. Ég ætlaðist ekki til þess að hann færi að reifa innihald máls sem væri á vegum lögmannsstofu sem hann tengdist. Ég spurði einfaldlega hvort það væri ekki eina prófmálið sem væri eftir. Það voru ákveðin 11 prófmál og ég veit ekki betur en það sé komin úrlausn í öllum öðrum prófmálum, öllum hjá Landsbankanum, Arion banka, Íslandsbanka og gagnvart Dróma, og þetta sé eina prófmálið sem ekki er genginn dómur í. Það var sameiginleg niðurstaða fjármálafyrirtækjanna og umboðsmanns skuldara að þessi prófmál svöruðu þeim spurningum sem svara þyrfti en þetta Lýsingarmál sem er núna í héraði fer til Hæstaréttar alveg óháð því hvaða sjónarmið eða málsatvik eru í þeim málum eða hver er líkleg niðurstaða í því. Er það ekki eina prófmálið sem er eftir í kerfinu? Og mun þetta frumvarp nokkuð hafa áhrif til flýtingar á því því að það er þegar í flýtimeðferð? Mun þetta breyta nokkru um úrlausn þessara prófmála? Eru þau ekki einfaldlega þegar búin að fara í gegnum kerfið að undanteknu þessu eina máli sem er í flýtimeðferð og kemur dómur í núna í haust?