142. löggjafarþing — 10. fundur,  21. júní 2013.

meðferð einkamála.

2. mál
[14:31]
Horfa

Brynjar Níelsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég get eiginlega ekki svarað þeirri spurningu hvort búið sé að svara öllum atriðum svo hægt sé að klára þessi mál nema í þessu eina máli. Ég sé ekki betur en að fjármálafyrirtækin líti mörg svo á að ekki sé öllum spurningum svarað, en ég treysti mér ekki til að taka afstöðu til þess.