142. löggjafarþing — 10. fundur, 21. júní 2013.
meðferð einkamála.
2. mál
Hæstv. forseti. Ég er alveg sammála hv. þingmanni að löggjöf á almennt að vera skýr. Stundum erum við í þeirri stöðu að erfitt er að hafa hana nákvæmlega niðurneglda og þá reynir oft á almenna skynsemi og dómgreind manna sem málin varða. Ég held nefnilega að akkúrat í þessu máli sé ofboðslega erfitt að hafa regluna eða löggjöfina skýra, en markmiðið er gott. Þetta styrkir lagagrunninn, þetta er örugglega eitthvað til bóta og sannarlega ekki til skaða.