142. löggjafarþing — 11. fundur,  24. júní 2013.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

1. mál
[17:11]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P):

Herra forseti. Ég sat bæði í atvinnuveganefnd og í efnahags- og viðskiptanefnd þegar rætt var um þetta frumvarp og þau rök sem voru með því að hækka ekki gistináttagjald upp í 14%, eins og stendur til nema þessi lög nái fram að ganga, voru meðal annars þau, eins og hefur komið fram í umræðunni, að þessi hækkun yki ólöglega atvinnustarfsemi í greininni, þ.e. svarta starfsemi. Það var eitt atriðið og umræðan snerist meira um það en samkeppnisstöðuna sem maður hefði haldið að skipti meira máli.

Það var talað aðeins um samkeppnisstöðu greinarinnar. Ég spurði bæði þá sem töluðu fyrir málinu og þá sem töluðu gegn því í nefndunum, þ.e. gesti: Er ekki til einhvers konar alþjóðlegt index, þ.e. röðunarskrá, sem metur lönd heimsins? Hvernig er samkeppnisstaða ferðaþjónustu í þeim löndum sem við berum okkur saman við? Það hlýtur að skipta máli fyrst menn segja að þetta hafi afgerandi áhrif á samkeppnisstöðuna. Þau svör sem ég fékk þegar ég spurði að því hvort ekki væri til svona index voru: Nei, það vissu menn ekki. Þeir vissu ekki hvort til væri slíkt index, samt notuðu þeir þau rök að samkeppnisstaða Íslands á alþjóðamarkaði, þegar kemur að landinu sem ferðamannalandi, væri í hættu vegna þess að gistináttagjaldið mundi skerða samkeppnisstöðuna svo mikið.

Ég fór bara á netið og gúglaði hvort ekki væru til svona index. Viti menn, The World Economic Forum er búið að taka saman svona index í mörg ár og indexið fyrir árið í ár, 2013, kom út núna í mars. Af þeim 140 löndum sem eru skoðuð í þeirri skýrslu er Ísland í 16. sæti yfir þau ríki í ljósi þess hve horfurnar eru góðar í uppbyggingu ferðaþjónustu. Í þessari skýrslu er líka rakið að samræmi sé á milli fyrri skýrslu þeirra, þ.e. um hagkvæmnistækifæri við að byggja upp ferðaþjónustuna, og raunverulegra ferðamanna sem koma til landsins tveimur árum seinna.

Við vitum alveg að allt bendir til þess að ferðamönnum á Íslandi eigi eftir að fjölga. Þá veltir maður fyrir sér, fyrst samkeppnisstaða Íslands er svona rosalega góð: Við erum í 16. sæti af 140 ríkjum í heiminum og aðeins eitt ríki á Norðurlöndunum er ofar en við og það er Svíþjóð. Sú staðreynd var einmitt notuð til þess að réttlæta að fyrirhuguð hækkun upp í 14% yrði dregin til baka, að við þyrftum að passa upp á samkeppnisstöðu okkar, og til hliðsjónar er ferðamönnum að fjölga og mun fjölga mikið og ágangur verður á landið. En ég lærði í viðskiptafræðinni í Háskóla Íslands að ef of mikil eftirspurn er eftir einhverju þá hækkar verðið meðal annars. Það er eitt af því sem hægt er að gera.

Nú höfum við heyrt hér í umræðunni að hin fyrirhugaða hækkun verði á endanum nálægt 1%. Maður spyr sig því: Ef ekki á að taka gjöld af þeirri grein sem er í miklum vexti og hefur sterkt samkeppnisforskot, hvar eigum við þá að taka þessi gjöld? Og ef við ætlum ekki að taka þessi gjöld þá þýðir það að við þurfum að taka lán sem þeim nemur. Við verðum að taka lán. Ef við ætlum ekki að stækka fjárlagagatið þá þýðir það bara lán, aukinn kostnaður. Annaðhvort þurfum við að borga það seinna eða komandi kynslóðir.

Þetta er alla vega það sem mér hefur áskotnast og ég hef heyrt í þessari umræðu en það er náttúrlega almenningur í landinu sem þarf að taka afstöðu til þess hvað hann vill gera og láta í sér heyra. Mér sýnist það vera algjörlega röng forgangsröðun að byrja á því að lækka gjöld á grein sem er í miklum vexti og hefur mikil tækifæri á þeim tíma þegar það er fjárlagagat og innviðir samfélagsins eru laskaðir.