142. löggjafarþing — 12. fundur,  25. júní 2013.

varamaður tekur þingsæti.

[13:31]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hefur bréf frá 4. þm. Norðaust., Steingrími J. Sigfússyni, um að hann geti ekki gegnt þingmennsku á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í kjördæminu, Edward H. Huijbens. Kjörbréf Edwards hefur áður verið rannsakað og samþykkt.

Edward H. Huijbens hefur ekki tekið áður sæti á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.

 

[Edward H. Huijbens, 4. þm. Norðaust., undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]