störf þingsins.
Virðulegur forseti. Ég geri að umtalsefni frétt í Fréttablaðinu í morgun sem var á forsíðu blaðsins. Talað var um að nýjustu rannsóknir jarðvísindamanna sýndu að aðkallandi væri að gera nýtt mat á jarðskjálftavá á Norðurlandi. Það kemur fram í þessari frétt að jarðskorpumælingar sýni spennu í Húsavíkurmisgenginu og þar sé spenna til staðar fyrir skjálfta af stærðinni 6,8.
Það er mat vísindamannsins Páls Einarssonar, prófessors í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands, að hugsanlega þurfi að endurskoða staðsetningu kísilmálmverksmiðju á Húsavík og jafnvel að færa sjúkrahúsið á staðnum.
Þegar svona fréttir birtast í fréttablaði og löngu áður en stjórnvöldum er gerð grein fyrir þeirri vá sem jarðvísindamenn standa frammi fyrir, uppgötva og telja skylt að komi fram, finnst mér ekki bara ástæða til að skoða þau mannvirki sem fyrirhugað er að reisa á Bakka heldur að við veltum fyrir okkur hvort og hvernig áhættumat við gerum þegar um mannvirkjaframkvæmdir er að ræða almennt. Þar sem við búum í landi sem er virkt eldfjallaland er það enn brýnna fyrir okkur.
Virðulegi forseti. Ég verð að viðurkenna að þessi frétt vakti með mér dálítinn óhug.