störf þingsins.
Virðulegi forseti. Varðandi það sem hv. þm. Ragnheiður Ríkharðsdóttir vakti máls á rétt í þessu er rétt að taka fram að í tíð síðustu ríkisstjórnar var sett af stað heildstætt áhættumat á öllum eldfjöllum í landinu sem er rannsóknarverkefni sem tekur væntanlega 20–30 ár; þetta verðum við að gera, við verðum að gera áhættumat fyrir fram. Ofanflóðavarnir hafa verið í góðum farvegi en ég tek undir orð hv. þingmanns að öðru leyti.
Ég vil gera hér að umræðuefni stöðu rammaáætlunar í pólitískri umræðu. Það er gríðarlega mikilvægt, og ég hef hvatt til þess, að menn haldi sig við staðreyndir í þessu máli. Það er ekki svo að hægt sé að svipta til rammaáætlun þrátt fyrir að menn séu ósáttir við staðsetningu tiltekinna virkjunarkosta, og ég vil þá nefna umræðuna um Norðlingaölduveitu.
Algerlega burt séð frá því hverjar eru skoðanir fólks á einstökum hugmyndum sem komu þar upp þá er Norðlingaölduveita í verndarflokki samkvæmt niðurstöðu og verndarflokkurinn er í sjálfu sér bara í friðlýsingarfarvegi. Hann er ekki í skoðun eða endurskoðun hjá nýrri verkefnisstjórn eins og er um alla kostina í biðflokki heldur er hann í vernd þannig að stækkun friðlandsins í Þjórsárverum er í framhaldi af því. Mér finnst stundum eins og þingmenn fari dálítið á sjálfstýringu í því að tala eins og við töluðum í því umhverfi þegar engin rammaáætlun var til, þegar landið var allt undir og landið var allt saman í nýtingarflokki.
Sú sátt sem var fyrir hendi um stækkun friðlandsins — hér var ekki nokkur maður sem talaði um breytingar á Norðlingaölduveitu við afgreiðslu rammaáætlunar í janúar sem leið. Fólk var að tala um einstaka kosti í biðflokki. Það var ekki verndarflokkurinn sem var undir og allra síst var það til umræðu að taka kosti úr verndarflokki og setja í nýtingarflokk með einu pennastriki. Það er umræða sem við höfum ekkert verið í hér.
Ég vil hvetja hv. þingmenn ríkisstjórnarflokkanna til að halda sig við það að bera virðingu fyrir því sem á undan er gengið hér og vegna þess að í umræðunni skiptir máli að við séum á sama stað.