störf þingsins.
Herra forseti. Fyrir liggur að stefna ríkisstjórnarinnar er að afnema verðtryggingu af neytendalánum og að breyta verðtryggðum lánum í óverðtryggð lán eftir því sem kostur gefst. Þetta eru jafnframt skýr kosningaloforð Framsóknarflokksins sem hafa skapað miklar væntingar hjá almenningi um sanngjarnari lánaskilmála og leið út úr hinni alræmdu verðtryggingu.
Í þingsályktun forsætisráðherra, um aðgerðir vegna skuldavanda heimila, kemur þessi stefna skýrt fram og þau skilaboð hafa verið send til almennings og lánastofnana að ríkisstjórnin ætli að uppræta verðtryggingu á lánum heimilanna.
Ég vil spyrja hv. formann efnahags- og viðskiptanefndar, Frosta Sigurjónsson, hvort hann telji eðlilegt eða ábyrgt af fjármálastofnunum að halda áfram að veita verðtryggð lán við þessar aðstæður. Er ekki rétt að fjármálastofnanir hætti að veita verðtryggð lána þegar stefnt er að því að banna þau á komandi þingi?
Áætlanir ríkisstjórnarinnar hafa nú þegar skapað ákveðna óvissu, t.d. á fasteignamarkaði. Fjármálafyrirtækin sjálf gætu eytt þeirri óvissu með því að hætta að veita verðtryggð lán þó að það sé enn heimilt. Ég vil því einnig spyrja hv. formann efnahags- og viðskiptanefndar hvort hann sé tilbúinn að mælast til þess að fjármálastofnanir hætti nú þegar að veita verðtryggð lán til að draga úr óvissunni sem ríkisstjórnin hefur skapað.