142. löggjafarþing — 12. fundur,  25. júní 2013.

vanhæfni þingmanna til að fjalla um mál.

[14:03]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti leit ekki svo á að hv. þm. Vigdís Hauksdóttir væri að ýja að því að vægi orða varaþingmanna væri ekki hið sama og vægi þeirra þingmanna sem kjörnir hafa verið sem aðalmenn til setu á Alþingi. Um leið og menn taka hér sæti, hvort sem það eru aðalmenn eða varamenn, hafa menn sömu réttindi og sömu skyldur, hvort sem menn hafa tekið sæti hér sem varamenn eða hlotið kosningu sem aðalmenn.