142. löggjafarþing — 12. fundur,  25. júní 2013.

Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.

11. mál
[16:11]
Horfa

Össur Skarphéðinsson (Sf) (andsvar):

Forseti. Hv. þingmaður innir mig eftir því hvort Samfylkingin og Vinstri græn mundu hugsanlega skipa fyrir sína hönd í stjórn Ríkisútvarpsins einhvern sem er með flokksskírteini í Sjálfstæðisflokknum. Ég segi eins og hv. þingmaður, ég tel það hugsanlegt að þeir flokkar mundu, eins og hann orðaði um Sjálfstæðisflokkinn, skipa einhvern annan en þann sem er með slíkt flokksskírteini. Ég get fullvissað hann um það og er vel hugsanlegt að svo verði.

Hins vegar liggur það algjörlega ljóst fyrir að þó að kosið sé hlutbundinni kosningu í stjórn Ríkisútvarpsins er þar ákveðinn meiri hluti. Ljóst er að Sjálfstæðisflokkurinn er búinn að svínbeygja Framsóknarflokkinn í þessu máli. Liggur það ekki alveg ljóst fyrir? Framsóknarflokkurinn sem studdi hina fyrri skipan máls, lætur ekki sjá sig í þessari umræðu. Það er því deginum ljósara að einhver hrossakaup liggja að baki þannig að Framsóknarflokkurinn mun að sjálfsögðu skipa menn í stjórn Ríkisútvarpsins sem verða nokkuð leiðitamir hæstv. menntamálaráðherra og Sjálfstæðisflokknum. Það liggur alveg fyrir.

Í þessu máli hefur Framsóknarflokkurinn sýnt það í dag og í gær og í síðustu viku að hann liggur hundflatur fyrir Sjálfstæðisflokknum.

Svo er það heiðarlegt af hv. þm. Pétri H. Blöndal sem hefur alltaf verið þeirrar skoðunar, alla vega um langt skeið, að hann hefur ekkert álit á Ríkisútvarpinu og telur það óþarft og bagga á þjóðinni. Það liggur algjörlega ljóst fyrir hver er hin nýja stefna Sjálfstæðisflokksins. Var hún ekki að birtast um helgina í Morgunblaðinu? Var það ekki Davíð Oddsson, sá sem enn ræður mestu, næstum öllu, í Sjálfstæðisflokknum sem var að gefa út reseptið fyrir næstu fjögur ár? Það á að slá Ríkisútvarpið af.