142. löggjafarþing — 12. fundur,  25. júní 2013.

Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.

11. mál
[16:33]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Illugi Gunnarsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta er í sjálfu sér ekkert flókið mál. Það vill þannig til að málið kom inn á mitt borð af því það lá fyrir að ganga þyrfti frá skipan stjórnar Ríkisútvarpsins. Ég settist auðvitað yfir málið. Þetta var mín afstaða. Ég tel, eins og ég fór yfir í ræðu minni áðan, að valnefndarfyrirkomulagið sé ekki heppilegt að vel athuguðu máli. Ég fór yfir það í fyrri ræðu minni, þ.e. í 1. umr. um málið gerði ég ítarlega grein fyrir hvernig ég byggði upp afstöðu mína.

Ef hv. þingmaðurinn er að leita eftir einhvers konar duldum sannleika sem gæti komið fram einhvern veginn og upplýst málið með einhverjum allt öðrum hætti en hefur verið reifað hér held ég að það sé alveg sama hversu oft hv. þingmaður mundi spyrja um það, það kemur ekkert annað fram en ég er að segja hér.

Þetta var ástæðan. Það var mat mitt að þetta fyrirkomulag væri ekki heppilegt. Ég settist niður, og auðvitað með mínum embættismönnum, og vann síðan þessi frumvarpsdrög og lagði þau fram fyrir þingið í þeirri von að það sjónarmið sem birtist þar mundi hljóta meirihlutafylgi á þinginu. Flóknara, virðulegi forseti, er málið ekki.