Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.
Virðulegi forseti. Afsakaðu að ég skuli stíga hér upp í pontu óvelkominn.
Eins og ég segi eru ýmsar leiðir til að tryggja hlutleysi, alla vega reyna að tryggja hlutleysi. Líkt og hæstv. menntamálaráðherra benti réttilega á hefði mátt taka Íþróttasambandið með inn í þetta. Önnur hugmynd er að taka Blaðamannafélagið inn í það og hafa kannski svolítið stóra valnefnd, útvarpa fundunum, það væri sérdeilis gegnsætt. Ég held að þá ætti ekki að vefjast fyrir neinum hvernig ferlið er nákvæmlega og á hvaða forsendum fólk er ráðið í stjórn Ríkisútvarpsins.