Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.
Herra forseti. Ég er sammála hv. þingmanni að þessu leyti. Eins og hann þekkir mig og hann veit að það er mín skoðun að þín ræða skal vera já, já og nei, nei. Að því leyti til erum við, ég og hæstv. menntamálaráðherra og hæstv. forsætisráðherra, biblíufastir.
Það var gott að þetta viðhorf hæstv. forsætisráðherra kom fram og svona snemma. Það breytir ekki hinu að við vitum hvernig staðan er á fjölmiðlamarkaði. Hún er þröng. Það er erfitt að fá störf við fjölmiðla í dag. Þeim fækkar.
Ég ímynda mér, eins og staðan hefur verið í íslensku samfélagi eftir kreppu, að menn hugsi sig um tvisvar áður en þeir leggja höfuðið á stokkinn. Ég held að menn hugsi sig um tvisvar áður en þeir voga sér að koma fram með fréttir sem hugsanlega eru umdeildar eða sem vitað er að beinlínis falla ekki í kramið hjá forsætisráðherra sem notar stöðu sína til að skrifa grein þar sem hann kvartar undan því að hann sitji undir loftárásum í fjölmiðlum. Hvert er tilefnið? Jú, það er aðallega þrennt sem stendur upp úr í greininni. Fjölmiðlar höfðu leyft sér að skrifa tugi frétta af undirskriftasöfnun sem er sjálfsprottin í samfélaginu gegn þeirri ætlan ríkisstjórnarinnar að koma með á silfurfati 10 milljarða handa stórútgerðinni í landinu. Það er glæpurinn. Og hugsa sér að það skuli jafnvel hafa ratað í fyrstu fréttir fjölmiðla. Það eru loftárásir að mati hæstv. forsætisráðherra.
Þegar maður sér slíkar hótanir gagnvart fjölmiðlunum á annað borðið og hins vegar frumvarp hæstv. menntamálaráðherra þar sem hann, Sjálfstæðisflokkurinn og flokkur hæstv. forsætisráðherra, eru að taka til sín pólitísk undirtök í stjórn Ríkisútvarpsins — hvernig ætla menn þá að starfsmönnum viðkomandi fjölmiðla líði? Er einhver svo grænn að telja (Forseti hringir.) að allir hafi þau hné að menn geti ekki kiknað undan slíku?