Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.
Herra forseti. Ég er að minnsta kosti sammála því hjá hæstv. menntamálaráðherra að menn eiga almennt ekki að vera í fýlu. Ég geri mér far um að vera það ekki. (Gripið fram í.) Ef hæstv. ráðherra hefði bara brot af minni lífsgleði mun honum vel farnast í sínu nýja embætti, ég get fullvissað hann um það.
Af því að hæstv. ráðherra segir að hér sé hugsanlega um samsæriskenningu að ræða af minni hálfu þegar ég bendi á að hæstv. forsætisráðherra skakar skellum að fjölmiðlamönnum sem starfa hjá opinberum stofnunum og hins vegar að ríkisstjórn hæstv. forsætisráðherra er að taka til sín pólitísk undirtök í stjórn stofnunarinnar, þá segi ég bara: Stundum endurtekur sagan sig. Hún er að endurtaka sig núna, því miður ekki sem farsi eins og Karl Marx sagði. Við höfum séð þetta gerast áður. Við höfum áður séð forsætisráðherra ganga fram með þessum hætti og byrja að beita sér gagnvart fjölmiðlum, það þróaðist að vísu út í einstaka fjölmiðlamenn líka. Við höfum einnig séð þá fjölmiðlamenn sem fyrir því urðu flæmda burt af viðkomandi fjölmiðlum. Um það eru því miður dæmi. Ég er ekki að halda því fram að það vaki fyrir hæstv. forsætisráðherra, en ég vara við þessari þróun.
Ég er aðeins að draga það upp hvernig þetta lítur út þegar menn vega þetta saman að hæstv. forsætisráðherra kvartar undan því sem er ekkert annað en eðlileg umfjöllun um lýðræðislega andstöðu í samfélaginu og svo hins vegar það verk sem liggur hér á borðinu, að taka á valdið yfir stofnuninni inn í pólitíska flokka. Hvernig lítur það út? Hvernig halda menn að það líti út í augum þeirra sem hafa verið að skrifa þessar fréttir, sem hafa leyft sér að segja frá því að 33 þúsund manns hafi skrifað undir mótmæli gegn ríkisstjórninni? Herra trúr. Nei, hér þarf ekki um sárt að binda.