142. löggjafarþing — 15. fundur,  27. júní 2013.

tilhögun þingfundar.

[10:31]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti vill tilkynna að í dag verður gert hádegishlé á milli kl. 12.30 og 13.30 vegna nefndafunda.

Þá áformar forseti fund með þingflokksformönnum síðar í dag.

Svo háttar til um 4. dagskrármálið að of skammt er liðið frá útbýtingu þingskjals. Þarf því að leita samþykkis fyrir því að taka megi málið á dagskrá. Atkvæðagreiðsla um afbrigðin fer fram síðar á fundinum, líklega klukkan hálftvö í dag.

Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa, um lengd þingfunda, er það tillaga forseta að þingfundur geti staðið lengur í dag en þingsköp kveða á um. Er óskað eftir atkvæðagreiðslu um tillögu forseta? Ef svo er ekki skoðast hún samþykkt.