142. löggjafarþing — 15. fundur,  27. júní 2013.

störf þingsins.

[10:35]
Horfa

Sigrún Magnúsdóttir (F):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Val Gíslasyni fyrir þessa fyrirspurn inn í þingið og til mín.

Eins og hv. þingmaður veit er þingflokkur Framsóknarflokksins nýtt fólk, stærsti hluti þingflokksins er að koma í fyrsta skipti til þings. Þessi málefni hafa ekki verið rædd á sumarþinginu enda teljum við líklegast til árangurs að berjast fyrir hagsmunum heimilanna og endurreisa samfélagið úr klóm stjórnarflokkanna sem hér voru á síðasta kjörtímabili.

Það er mjög erfitt að skilgreina hvað er list og ég held að enginn hér inni sé fullkomlega hæfur til þess og ekki treysti ég mér til þess. Þess vegna verður maður að trúa á þær nefndir sem eru skipaðar til að forgangsraða og gera það með eðlilegum hætti. Hins vegar var Framsóknarflokkurinn alfarið á móti því hvernig listamannalaunum var úthlutað síðast.

Framsóknarflokkurinn lítur svo á að besta leiðin til að sinna listamönnum þjóðarinnar og efla grósku í íslensku listalífi sé að örva ungt og efnilegt fólk til dáða og láta það fé sem við höfum til listgreina almennt í landinu koma heldur til unga fólksins heldur en gagnvart þeim sem eru kannski búnir að ávinna sér ákveðinn sess með list sinni og njóta þess á efri árum. Heiður getur maður veitt með mörgum hætti öðrum en með því að úthluta peningum. Maður getur úthlutað mönnum verðlaunum öðruvísi en það þurfi að vera á starfslaunum. En við viljum örva unga fólkið til dáða og það er alfarið stefna Framsóknarflokksins í þessu máli.