störf þingsins.
Virðulegi forseti. Hv. formaður fjárlaganefndar, Vigdís Hauksdóttir, lýsti því yfir í viðtali á beinni línu í DV í gær að ríkisstjórnin væri með frumvarpi um breytingu á lögum um almannatryggingar að færa til baka 16–17 milljarða skerðingu sem aldraðir og öryrkjar urðu fyrir. Við erum að bæta tjónið, þeir eru að fá leiðréttingu sem voru skertir, sem höfðu orðið fyrir tjóni, sagði hún.
Ég verð að viðurkenna að þessi fullyrðing kom mér og eflaust fleirum á óvart því að mér er ókunnugt um þessa 16–17 milljarða sem ríkisstjórnin tók af öldruðum og öryrkjum. Einnig koma orð hv. þingmanns á óvart vegna þess að væntanlegar breytingar á útgjöldum ríkissjóðs vegna frumvarps hæstv. félagsmálaráðherra um breytingu á lögum um almannatryggingar, sem hún lagði fram á þingi í gær, gera ráð fyrir því að kostnaður við frumvarpið verði 4,6 milljarðar á ári fyrir ríkissjóð.
Ekki er gert ráð fyrir tekjuliðum fyrir ríkissjóð í frumvarpi hæstv. félagsmálaráðherra eða í nokkrum af þeim tillögum eða frumvörpum ríkisstjórnarinnar sem hingað til hafa komið fram. Í umsögn skrifstofu opinberra fjármála við frumvarpið er lögð áhersla á að til að mæta þessum kostnaði verði að gera ráðstafanir um skattahækkanir, niðurskurð í öðrum málaflokkum eða lántöku með tilheyrandi vaxtakostnaði. Fyrir utan það að af rúmlega 43 þúsund lífeyrisþegum fá aðeins 7 þúsund leiðréttingu á skerðingu sem er fjarri því að vera allir aldraðir og öryrkjar, líkt og hv. þm. Vigdís Hauksdóttir lýsti yfir í viðtalinu.
Spurning mín er þessi: Hvaða tekjuöflunarleiðir leggur hv. formaður fjárlaganefndar til til að mæta kostnaði við frumvarp hæstv. félagsmálaráðherra? Ef það er í pípunum hjá hægri stjórninni, sem hv. þingmaður styður, að leiðrétta skerðingu 36 þúsund lífeyrisþega sem ekki fá skerðinguna leiðrétta núna væri gott fyrir lífeyrisþega að fá að vita nánar af þeim áformum. Og fyrir áhugamenn um ábyrga stjórn ríkisfjármála væri gott að fá að vita um tekjuöflunarleiðir við þá viðbótaraðgerð sem þingmaðurinn talar um í þessu viðtali.