störf þingsins.
Virðulegi forseti. Það er ekki að spyrja að því, það viðrar alla daga vel til loftárása af hálfu hv. þm. Vigdísar Hauksdóttur. Ég verð að segja alveg eins og er að mér er nóg boðið og þess vegna kem ég hér upp til þess að verja minn maka. (Gripið fram í: Já.) Það að þingmenn skuli koma hér og ræða um maka annarra þingmanna er hreinlega fyrir neðan allar hellur, sérstaklega þar sem þeir hafa lítil tök á því að verja sig fyrir slíkum loftárásum. (Gripið fram í.)
Virðulegi forseti. Er það ekki örugglega þannig að hv. þm. Vigdís Hauksdóttir hafi hér málfrelsi? Vegna þess að þá er best að setja hana á mælendaskrá ef hún getur ekki setið þegjandi undir minni ræðu.
(Forseti (EKG): Forseti vill taka fram að eins og hv. þingmenn vita kemst takmarkaður fjöldi á mælendaskrá í þessum dagskrárlið. Mælendaskráin er full og hv. þm. Vigdís Hauksdóttir var ekki á mælendaskrá.)
Er það réttlæting fyrir því að hún fái þá að gjamma fram í? Virðulegur forseti, ég kem hér upp vegna þessa. Ég held að hver og einn þingmaður hér inni ætti að hugsa um það ef hér er verið að byrja með einhvers konar nýjar aðferðir sem snúast um að þingmenn ræði um maka annarra þingmanna út af mögulegum og ómögulegum málum. Mér finnst vont að sitja undir þessu vegna þess að minn maður var búinn að vera rithöfundur lengi áður en við kynntumst, hann var búinn að fá starfslaun úr listamannasjóði frá 1996 og við kynntumst 14 árum síðar. Hann hefur fengið minna eftir að við kynntumst ef eitthvað er og ég geri ráð fyrir því að það sé á faglegum forsendum.
Virðulegur forseti. Ég vil um leið og ég ber af mér sakir sem á mig eru hér bornar taka fram að ég kom hvergi nálægt einu eða neinu hvað varðar úthlutun til míns manns úr starfslaunasjóði listamanna eftir að við kynntumst. Ég óska eftir því að hæstv. forseti hlutist til um að verja maka þingmanna fyrir slíkum árásum með því að hlutast til um að rannsókn verði hreinlega gerð á þessu máli þannig að mannorð þeirra verði hreinsað. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)