142. löggjafarþing — 15. fundur, 27. júní 2013.
aðgerðir vegna skuldavanda heimila á Íslandi.
9. mál
Hæstv. forseti. Ég virði mjög þær skoðanir sem aðrir flokkar hafa í sínum málum varðandi skuldamál heimilanna og allt það, ég virði sjónarmið þeirra í þessum málum. En ég hef auðvitað mikla trú á stefnu Framsóknarflokksins í þessum málum. Ég hef trú á því að með breyttri peningastefnu og áherslum framsóknarmanna í málefnum heimilanna munum við ná góðum efnahagsstöðugleika á Íslandi.