aðgerðir vegna skuldavanda heimila á Íslandi.
Frú forseti. Margvísleg rök hníga að afnámi almennrar verðtryggingar neytendalána, ekki síst þörf á aukinni neytendavernd og efnahagsleg rök. Í óstöðugu og sveiflukenndu efnahagslífi er áhættan af lánastarfsemi einhliða á herðum lántakandans sem hefur leitt til kröfu um almenna niðurfærslu verðtryggðra lána í kjölfar hruns krónunnar árið 2008. Í ofanálag hefur verðtryggingin hvatt til lengri lánstíma, 40 ára verðtryggð jafngreiðslulán hafa verið kölluð Íslandslán enda sérkenni íslenska lánamarkaðarins. Lántakandi greiðir ekki niður höfuðstól fyrr en á síðari hluta lánstímans en fram að þeim tíma hækkar höfuðstóll lánsins ár frá ári. Verðtryggingin hefur því beinlínis hvatt til skuldsetningar og kemur hún mörgum í koll með yfirskuldsettar eignir.
Þegar verðtryggingunni var komið á fót árið 1979 voru aðstæður á fjármálamarkaði með öðrum hætti en nú er. Fjármálakerfið var allt meira og minna í eigu og undir stjórn ríkisins. Vaxtaákvarðanir voru miðstýrðar og fjármagn skammtað eftir geðþótta og fyrirgreiðslu. Afnám verðtryggingar þýðir ekki afturhvarf til þessa kerfis. Vaxtaákvarðanir eru með öðrum hætti nú. Vextir ráðast á markaði og því hafa fjármálastofnanir meira svigrúm nú til að bregðast við verðbólgu og mikilli eftirspurn eftir lánsfé. Vaxtaákvarðanir Seðlabankans yrðu skilvirkara tæki til hagstjórnar og ríkisstjórnir yrðu að taka meiri ábyrgð á hlut ríkisútgjalda við hagstjórn enda mundu lausatök við stjórn ríkisfjármála hafa bein áhrif á vaxtagreiðslur íslenskra heimila af húsnæðislánum.
Samfylkingin hefur haft þá stefnu að besta leiðin til að afnema verðtryggingu sé að ganga í Evrópusambandið og taka í kjölfarið upp evru sem gjaldmiðil. Þannig myndast sá stöðugleiki sem við teljum mikilvæga forsendu þess að hér sé með ábyrgum hætti hægt að afnema verðtryggingu.
Ný ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hefur gert ótímabundið hlé á aðildarviðræðum að sögn og vill að krónan verði framtíðargjaldmiðill þjóðarinnar. Það er því ljóst að leið Samfylkingarinnar til afnáms verðtryggingar er ekki fær næstu árin og nauðsynlegt er að leita annarra leiða. Ríkisstjórnin hefur einnig boðað almenna niðurfærslu á verðtryggðum lánum vegna hruns krónunnar og aðgerðir til að færa verðtryggð lán í óverðtryggð. Framsóknarflokkurinn lofaði afdráttarlaust fyrir síðustu kosningar að verðtryggingin yrði afnumin með öllu. Það er því ljóst að staða verðtryggingarinnar á lánamarkaði er í uppnámi og mikilvægt að bregðast við af festu.
Þrátt fyrir þessa stöðu er óvíst með öllu hvenær ríkisstjórnin hyggst leggja fram lagafrumvarp um málið. Þess vegna er mikilvægt að löggjafinn dragi úr óvissu með því að kalla eftir frumvarpi um afnám verðtryggingar en ekki bara óljósum skoðunum á hvort það sé mögulegt í ljósi þessara afdráttarlausu kosningaloforða.
Einhver okkar þykjast skynja að Framsóknarflokkurinn sé á örlitlum flótta undan kosningaloforðum sínum, áferðin sé að breytast og að þingsályktunartillagan sem við ræðum nú beri vott um fremur þunnar efndir. Kosningaslagorð sem voru notuð í kosningabaráttu Framsóknarflokksins sem fór fram undir kjörorðinu Framsókn fyrir heimilin, voru til að mynda „Við þorum að standa með íslenskum heimilum“. Haldnir voru kosningafundir undir slagorðinu „Verðtryggingin afnumin!“. Það var ekki spurningarmerki heldur upphrópunarmerki í lokin á þeirri fyrirsögn. Og síðan „Verðtryggingin — lögleg og siðlaus?“ Þar er reyndar spurningarmerki í fyrirsögn fundarins.
Þetta eru mjög skýr skilaboð til kjósenda, flokkurinn stillir sér upp sem miklum andstæðingi verðtryggingar og fólk trúði því að með því að kjósa flokkinn væri það að tryggja að efndir yrðu en ekki frekari nefndir um það mál.
Ef einhverjir hafa ekki sannfærst af þessari yfirferð minni um væntingar má fara í það hvað hæstv. ráðherrar Framsóknarflokksins og þá forkólfar, ekki orðnir ráðherrar, sögðu til að mynda á kjördag. Í bloggi sínu, sem hv. þm. Össur Skarphéðinsson hefur gaman af að lesa rétt eins og sú sem hér stendur, segir formaður Framsóknarflokksins og hæstv. núverandi forsætisráðherra undir fyrirsögninni „Þetta er leiðin“, með leyfi forseta:
„Verðtrygging launa var afnumin vegna þess að hún þótti ýta undir verðbólgu með víxlverkun launahækkana og verðbólgu. Á sama hátt er verðtrygging neytendalána nú farin að ýta undir verðbólgu. Verðtryggingin eykur skuldir sem gerir bönkunum kleift að lána meira út og það eykur á verðbólgu. Verðtryggingin tekur líka úr sambandi helsta vopn stjórnvalda í baráttunni við verðbólgu, stýrivexti Seðlabankans. Afnám verðtryggingar af neytendalánum snýst um að koma á heilbrigðara fjármálakerfi og styrkja stöðu neytenda.“
Sama dag skrifar varaformaður Framsóknarflokksins, hæstv. núverandi landbúnaðar-, sjávarútvegs- og umhverfisráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson, pistil á blogg sitt sem ber heitið „Af hverju FramSókn?“. Þetta er fremur stuttur pistill, ég ætla ekki að fara náið í hann, frú forseti, en þetta er brýningin á kjördag, þetta eru síðustu herópin áður en fólk gengur til kosninga. Hann klykkir út með í lokin: „Og með leiðréttingu skulda og afnámi verðtryggingar lyftum við saman okinu af heimilunum. Sækjum fram saman.“
Þann 17. mars var núverandi hæstv. utanríkisráðherra að blogga, og er það til fyrirmyndar hvað framsóknarmenn eru duglegir að tala við kjósendur með bloggum sínum. (Gripið fram í: …utanríkisráðherra.) Já. Og þá segir þáverandi þingflokksformaður flokksins, Gunnar Bragi Sveinsson, og núverandi hæstv. utanríkisráðherra, með leyfi forseta:
„Verðtrygging neytendalána getur ekki haldið áfram með sama hætti og verið hefur. Fjármálastofnanir hafa haft mikinn hag af verðtryggingunni og grætt milljarða á hækkun hennar í boði íslenskra heimila.“
Svo heldur hann áfram:
„Við ætlum að afnema verðtrygginguna á nýjum neytendalánum og beita leiðréttingunni á þau eldri. Við höfum kynnst því síðastliðin fjögur ár að verðtryggingin á slíka vini og varðmenn, t.d. í Sjálfstæðisflokki og Samfylkingu, að þeir svífast einskis til að verja hana. Ástæðan er vitanlega sú að margir hafa mikinn fjárhagslegan hag af verðtryggingunni meðan heimilunum blæðir.“
Síðar segir hann, með leyfi forseta:
„Til að leiðrétta lánin, afnema verðtryggingu neytendalána og setja þak á vísitöluna þarf vilja og þor. Við munum ekki láta útúrsnúninga eða villandi fréttaflutning draga úr okkur kjarkinn. Við sýndum staðfestu fyrir 20% leiðinni og Icesave og munum sýna það áfram.“
Frú forseti. Ég tók þessi dæmi til að rökstyðja það sem haldið er fram, m.a. í fjölmiðlum og af ýmsum stjórnmálamönnum, að gefnar hafi verið út mjög miklar væntingar til kjósenda Framsóknarflokksins. Hér var kominn flokkurinn sem ætlaði að vinna fyrir heimilin og lyfta af þeim oki. Hjá hæstv. ráðherra Gunnari Braga Sveinssyni er reyndar jafnframt talað um þak á verðtryggingu og það má furðu sæta að fyrst flokkurinn getur ekki staðið við kosningaloforð sitt með meira afgerandi hætti að ekki sé brugðist við því með þaksetningu, sem var líka þarna á floti í kosningabaráttunni. En hún er væntanlega bara hluti af framtíðarmúsíkinni sem ég skil ekki alveg af því að með afnámi verðtryggingar þarf ekki að setja þak á verðtryggingu, hún verður einfaldlega ekki til staðar.
Frú forseti. Við í Samfylkingunni teljum að efndirnar við kosningaloforðunum séu þunnar og þingsályktunartillagan sé með engu móti til þess fallin að eyða þeirri óvissu sem hefur skapast á lánamarkaði á Íslandi.
Hv. þingmaður, varaformaður Samfylkingarinnar, Katrín Júlíusdóttir, orðaði þetta ágætlega þegar hún sagði í umræðu um stefnuræðu forsætisráðherra: Nefndir, engar efndir, og þingsályktunartillagan hefur nú heldur betur leitt það í ljós. Hæstv. forsætisráðherra mundi kannski vilja svara því hvort hann sé ekki tilbúinn að gefa skýrari skilaboð. Það kom fram hjá hv. formanni viðskipta- og efnahagsnefndar að hann teldi að lántakendur ættu að forðast verðtryggð lán og að lánastofnanir ættu að fara gætilega, enda telja framsóknarmenn líka að það ríki mikil óvissa um lögmæti verðtryggingar. Ég skal ekki fullyrða neitt um það, en það er mjög mikilvægt að skýr skilaboð komi frá ríkisstjórninni inn á lánamarkaði hvernig skipan mála eigi að vera. Það er ólíðandi fyrir heimili sem eru að taka stærstu fjármálaákvörðun sem hægt er að taka á heimili, sem er kaup á húsnæði, að vita ekki hvert útlitið er.
Það væri hægt, frú forseti, ef raunverulegur vilji væri fyrir hendi að afnema verðtryggingu strax. Það er hægt að leggja frumvarp fram um það, það er ekkert vandamál. Ýmsir vankantar munu reyndar fylgja því og það mun hafa alls kyns áhrif á efnahagslífið. En í ljósi þess að núverandi ríkisstjórn vill ekki skipta um gjaldmiðil, vill ekki koma landinu í hagfelldara umhverfi í peningamálum verður að takast á við þann skell sem afnám verðtryggingar verður. Það er óhjákvæmilegt og það er ekkert betra að fresta því. Það er best að rífa strax plásturinn af sárinu, það er ekki eftir neinu að bíða.
Við í þingflokki Samfylkingarinnar höfum þar af leiðandi lagt fram breytingartillögu sem er til þess fallin að draga úr óvissu og gefa heimilum skýrari upplýsingar um það hvað í vændum er. Í stað þess að sérfræðingahópur ríkisstjórnarinnar leggi fram tillögur verði lagt fram frumvarp í nóvember þannig að hér verði ljóst fyrir árslok hvert ríkisstjórnin ætlar að stefna. Þetta er óvissa sem er ekki hægt að bjóða upp á og síst af öllu af ríkisstjórn sem telur sig fulltrúa þess að halda uppi efnahagslegum stöðugleika og halda uppi stjórn sem sé sérstaklega hagfelld heimilunum í landinu.
Það er mjög fátt í gjörðum ríkisstjórnarinnar sem yfir höfuð lítur til hagsmuna almennings. Það væri því eðlilegt að ríkisstjórnarmeirihlutinn gæfi þau skilaboð til íslenskra heimila að einhvers staðar væru þau tilbúin að gefa vísbendingu um að standa eigi við eitthvað af stóru loforðunum sem öfluðu flokknum þessu fylgi.