142. löggjafarþing — 15. fundur,  27. júní 2013.

aðgerðir vegna skuldavanda heimila á Íslandi.

9. mál
[14:29]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þokkalega umræðu á köflum um þingsályktunartillöguna. Hér hafa borist nokkrar ábendingar sem ástæða er til að skoða og það gerist að sjálfsögðu í störfum nefndarinnar líka. Það hefur þó verið undarlegt að hlusta á hv. þingmenn Samfylkingarinnar sérstaklega, vegna þess að ræður þeirra hafa borið það með sér að það sem ráði för hjá umræddum flokki sé fyrst og fremst gremja yfir úrslitum kosninganna, meira að segja hv. þm. Katrín Júlíusdóttir, fyrrverandi fjármálaráðherra, lýsti því að það væru líka vonbrigði fyrir þau, þ.e. þingmenn Samfylkingarinnar, hver staðan væri með vísan til þess hver niðurstaða kosninganna eða áherslur í kosningabaráttunni hefur verið. Það er mjög mikilvægt að menn láti ekki gremju yfir úrslitum kosninganna algjörlega hlaupa með sig í gönur.

Hv. þm. Árni Páll Árnason var búinn að opna á það að hann mundi ekki standa í vegi fyrir framgangi þessara mála í rauninni, þvert á móti mundi hann gera hvað hann gæti til að greiða fyrir framgangi þeirra. Svo er allt í einu komið annað hljóð í strokkinn. Menn finna á þessu ýmsa vankanta, finna ýmsa galla á tillögunni og hvetja til þess að hitt og þetta sé skoðað betur. En á sama tíma, í sömu ræðum skammast menn yfir því að hlutirnir skuli ekki framkvæmdir strax, þ.e. hluti sem menn telja gallaða og mikilvægt að gefa sér tíma til að skoða betur en heimta svo að þeir séu afgreiddir strax.

Þetta er dálítið þversagnarkennt eins og svo margt í þeim málflutningi en þó kannski í samræmi við það sem hlaut að verða niðurstaðan. Hún hlaut að verða þversagnarkennd þegar flokkur sem háði kosningabaráttu árið 2009 undir slagorðum á borð við skjaldborg fyrir heimilin og velferðarbrúin, skilaði svo af sér þeirri niðurstöðu að útreið flokksins varð sú sem hún varð í kosningunum. Þá hlýtur auðvitað að vera erfitt að koma hingað upp og ætla strax á fyrstu dögum nýrrar ríkisstjórnar, fyrstu dögum nýs þings, að halda því fram að sú ríkisstjórn, það þing hafi þegar brugðist. Það er augljóst hversu holur hljómur er í slíku að ég ætla ekki að eyða löngum tíma í að fara yfir það.

Ég vil þó sérstaklega láta þess getið hvað það er ánægjulegt þegar þingmenn vitna orðrétt í það sem við þingmenn stjórnarmeirihlutans höfum sagt, vegna þess að allt of mikið hefur verið um það, ekki hvað síst hjá hv. þm. Össuri Skarphéðinssyni, að menn telji sig hafa séð eitthvað, telji sig hafa heyrt eitthvað, ruglist svolítið í ríminu eða kjósi að gleyma því eða jafnvel að snúa út úr því en veðrist svo allir upp og æsist yfir því sem aldrei var sagt eða aldrei var gert. Hv. þingmaður heldur því reyndar fram að hann sé ötull við lestur bloggs og það kann að vera rétt hjá hv. þingmanni, hann sé orðinn það ákafur bæði við lestur bloggs og ritun bloggs að hann sleppi ekki tölvunni jafnvel þegar hann kemur hingað í þingsal. Ég hef ekki séð það áður að hv. þingmenn séu að blogga í þingsalnum en svo ákafur bloggari er hv. þm. Össur Skarphéðinsson orðinn. Þá væri auðvitað æskilegt að sú umræða væri uppbyggileg og til þess fallin að bæta mál, leiða mönnum fyrir sjónir kosti og galla tiltekinna mála og byggðist þá á því sem raunverulega er til umræðu. Ástæðan fyrir því að ég ræði þetta er að ég vil sérstaklega fagna því að hv. þm. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir las orðrétt upp úr bloggi mínu og annarra hv. þingmanna eða hæstv. ráðherra. Þetta er allt til fyrirmyndar svo að ég nefni nú eitthvað jákvætt.

Þá að þeim álitamálum sem komið hafa til umræðu varðandi þingsályktunartillöguna. Það virðist enn vera nauðsynlegt að minna á hver tilgangurinn með þessari tillögu er. Það virðist nefnilega gæta misskilnings hjá hluta stjórnarandstöðunnar, hugsanlega er það misskilningur sem menn kjósa að búa til hjá sjálfum sér til að hafa um eitthvað að tala. En hvers eðlis sem misskilningurinn er er hann til staðar og gengur út á það að tilgangurinn með umræddri þingsályktunartillögu sé að leysa öll vandamál allra. Þau eru ekki það háleit markmiðin með þingsályktunartillögunni þó að þau séu býsna háleit engu að síður. Tillagan og sú vinna sem þar er lýst mun ekki leysa vanda allra og mun ekki leysa vanda þeirra fjölmörgu rekstrarfélaga sem hafa búið við viðvarandi óvissu í fjögur ár vegna stefnuleysis oft á tíðum og pólitísks óstöðugleika sem var ríkjandi hér á síðasta kjörtímabili, svo að ekki sé minnst á 200 breytingar á skattkerfinu. Það mun þurfa að leysa þann vanda með öðrum tillögum með öðrum frumvörpum. Þetta mun ekki leysa vanda bænda sem margir hverjir fóru illa út úr efnahagshruninu. Og þetta leysir ekki vanda allra skuldsettra heimila. Það mun þurfa áfram aðrar aðgerðir til þess. Það hefur aldrei annað staðið til en að beita öðrum ráðum, leggja fram aðrar tillögur og önnur frumvörp til þess að leysa ýmsan vanda sem samfélagið stendur frammi fyrir eftir undanfarin fjögur ár.

Þegar hv. þingmenn Samfylkingarinnar koma hingað upp og rekja þann vanda sem hinir ýmsu hópar í samfélaginu standa frammi fyrir eftir sex ára stjórnartíð Samfylkingarinnar geri ég ekki lítið úr því, það er alveg rétt. Það er alveg réttmæt ábending hjá hv. þingmanni Samfylkingarinnar. Staðan er mjög erfið eftir þessi sex ár. Og taka þarf á þeirri stöðu með fleiri tillögum en einni, fleiri frumvörpum en einu, svoleiðis að þetta er bara vinna sem mun halda áfram og mun því miður taka einhvern tíma óhjákvæmilega því að vandinn er umfangsmikill.

Ég heyri það enn, það eru ekki reyndar margir en það ber við að einhverjir haldi því fram að því hafi verið lofað fyrir kosningar af hálfu Framsóknarflokksins að skuldamálin yrðu öll leyst strax, því hefur jafnvel verið haldið fram að því hafi verið lofað að fólk fengi ávísanir sendar heim í pósti nánast daginn eftir kosningar. Þetta er svolítið sérkennilegt vegna þess að í aðdraganda kosninganna, í kosningabaráttunni, máttu frambjóðendur Framsóknarflokksins þola það að stöðugt var verið að skammast yfir því að þeir skyldu ekki leggja fram útfærðar tillögur, heldur ætla sér að útfæra þær eftir kosningar. Við útskýrðum reyndar hvers vegna það væri. Við vorum svolítið brennd af reynslunni að leggja útfærðar tillögur upp í hendurnar á hv. þingmönnum Samfylkingarinnar og Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í aðdraganda kosninga 2009. Þá lögðum við fram útfærðar tillögur um hvernig hægt væri að leysa stóran hluta vandans strax, nýta einstakt tækifæri sem þá var til staðar. En þá fór öll umræðan að snúast um útfærsluna, meira að segja ekki útfærsluna í heild heldur einhver smáatriði í útfærslunni. Og svo var alveg ómögulegt, virtist vera, að fallast á tillögurnar vegna þess að þær komu frá Framsóknarflokknum.

Eftir að hafa hvað eftir annað á undanförnu kjörtímabili lagt fram nýjar tillögur miðað við aðstæður eins og þær þróuðust, því miður þróuðust þær ekki nógu mikið í rétta átt, brugðum við á það ráð fyrir um það bil ári að nálgast hlutina á nýjan hátt og segja: Eigum við ekki að sammælast um ákveðin markmið? Eigum við ekki að vera sammála um það, þingmenn ólíkra flokka, að ákveðnum markmiðum þurfi að ná, ákveðin markmið séu réttlát og þess virði að vinna að þeim og þegar við erum búin að sammælast um markmiðin vinna þá saman að útfærslunni? Þetta var kynnt sem ný nálgun hjá okkur og við lögðum hana til grundvallar í kosningabaráttunni. Ég held að segja megi að hún hafi fallið ágætlega í kramið vegna þess að menn höfðu séð afrakstur áranna þar á undan. Menn gera sér líka almennt grein fyrir mikilvægi þess að vinna frumvörp vel, ég tala nú ekki um frumvörp sem varða svona stór mál eins og hag heimilanna í landinu almennt.

Hv. þingmenn Samfylkingarinnar hljóta að hafa lært það af reynslunni eftir að hafa ítrekað orðið fyrir ákveðnum skakkaföllum við lagasetningu að það borgar sig að vinna frumvörp vel, vinna þau að minnsta kosti þannig að þau standist, verði ekki dæmd ógild af dómstólum.

Nú leggjum við fram þessa þingsályktunartillögu til að fá Alþingi með á það að sammælast um að markmiðin séu þessi. Almennt heyrist mér stór hluti þingmanna taka undir þau markmið. Þótt sumir eigi svolítið erfitt með það held ég að menn fallist almennt á þau meginmarkmið, þó að gæti reyndar misskilnings eins og ég nefndi áðan um að tilgangurinn með þessu hefði verið sá að leysa á fyrstu dögum nýs kjörtímabils öll þau vandamál sem höfðu hrannast upp á undanförnum árum. Þó að þetta sé stór tillaga er hún ekki alveg það stór.

Svo er það rifjað upp að komið hafi verið til móts við heimilin á síðasta kjörtímabili og menn hugað að stöðu þeirra verst settu. Samt er hamrað á því aftur og aftur að fyrst og fremst þurfi að aðstoða þá verst settu. Það sem var aðaláherslan á síðasta kjörtímabili virðist ekki hafa skilað meiri árangri en svo að enn þurfi menn að einbeita sér að því sem síðasta ríkisstjórn hélt fram að hún hefði einbeitt sér að.

Talað er um 300 milljarða, að 300 milljarðar hafi verið settir í að koma til móts við heimilin. Megnið af þeim 300 milljörðum — hvernig komu þeir til? Ekki með aðgerðum síðustu ríkisstjórnar. Nei, heldur fyrir tilstilli dómstóla. Það þurfti dómstóla til að koma til móts við heimilin að þessu marki. Það getur varla verið að menn sjái ofsjónum yfir því að verja fjármagni sem mun ekki lenda á ríkinu í það að klára að koma til móts við heimilin.

Þá nefna menn hina ýmsu hópa sem muni ekki fá neitt ef komið verður til móts við heimili sem eru með verðtryggð lán. Það er svolítið sérkennileg umræða að ekki megi bæta fólki tjón sem það varð fyrir vegna óeðlilegs framferðis lánafyrirtækja við að ýta undir þenslu sem svo leiddi til falls gjaldmiðilsins, að ekki megi bæta því fólki það tjón sem það varð fyrir, jafnvel þó að tækifæri sé til þess, vegna þess að einhverjir aðrir kunna að hafa orðið fyrir annars konar tjóni. Sem sagt, það sé betra að gera ekki neitt fyrir neinn en að koma til móts við þennan stóra hóp, þennan stóra hluta samfélagsins sem varð fyrir beinu tjóni af falli bankanna.

Eins og reyndar, ég verð nú að þakka fyrir það, virðulegur forseti, nokkrir þingmenn bentu á. Það er ekki þar með sagt að menn ætli að vanrækja alla aðra hópa. Þá verð ég bara að ítreka aftur það sem ég rakti hér áðan að þó að þetta sé stór tillaga er ekki með henni einni ætlunin að leysa allan vanda allra. Það er stærra verkefni en svo og mun taka einhvern tíma.

Þetta er líka sérkennileg umræða með hliðsjón af tengingunni við neyðarlögin frá árinu 2008. Ég hef alltaf litið svo á að það að koma til móts við skuldsett heimili væri eðlilegt framhald af neyðarlögunum. Reyndar hafa ráðherrar úr þeirri ríkisstjórn, ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar, tekið undir að það hefði verið eðlilegt framhald af neyðarlögunum að koma til móts við þá sem skulduðu, enda skuldir hin hliðin á eignum.

Þegar með neyðarlögunum var séð til þess að eignir, innstæður í bönkum til dæmis, voru varðar og eignum þrotabúanna ráðstafað til þess, var ekki kvartað undan því, ekki var sagt: Bíddu nú við, af hverju er verið að koma til móts við þá sem eru með innstæður í bönkum? Af hverju ekki leigjendur eða þá sem áttu ekkert í bönkum? Af hverju er verið að koma sérstaklega til móts við þennan hóp?

Þetta var gert engu að síður og eðlilegt framhald af því að huga að hinni hliðinni, skuldahliðinni, enda var allt sem benti til þess í aðdraganda efnahagshrunsins, að minnsta kosti miðað við greiningar fjármálastofnananna, að það væri æskileg og örugg fjárfesting að setja eigið fé í fasteignir. Því var haldið að fólki þótt menn geti haft mismunandi skoðanir á því hversu skynsamlegar slíkar fjárfestingar hafi verið þegar fasteignabólan var orðin umtalsverð eftir að bankarnir komu inn á fasteignalánamarkaðinn.

Þeir sem settu eigið fé í eignir sínar voru að leggja fyrir í rauninni, töldu þetta örugga fjárfestingu, öruggan stað til þess að geyma fé til efri áranna. Aðrir settu peninga inn á bankareikning og tóku jafnvel samtímis 100% lán til þess að kaupa fasteign.

Það eru mjög hættuleg skilaboð í því fólgin ef eingöngu er komið til móts við þá sem tóku allt að láni, eingöngu þeir fái einhverja leiðréttingu, á meðan þeir sem settu eigið fé í eignir sínar í stað þess að setja það inn á bankabók og urðu sannarlega fyrir beinu tjóni vegna efnahagshrunsins, að ekkert sé komið til móts við þá.

Svo að ekki sé minnst á þann hættulega hvata sem felst í því að koma eingöngu til móts við þá sem komast algjörlega í þrot, á meðan þeir sem reyna að standa í skilum eru jafnvel í tvöfaldri vinnu til þess, spara við sig á allan mögulegan hátt, fara ekki í frí til útlanda, senda börnin jafnvel ekki í tómstundastarf, skrapa saman til að standa í skilum, að ekkert sé komið til móts við þá. Þetta eru mjög óheppileg skilaboð og fela í sér mjög skaðlega hvata fyrir samfélagið og efnahagslífið í heild.

Nú er tími minn að verða á þrotum, virðulegu forseti. Ég á eftir að fara yfir nokkur atriði, ætla á meðan tími gefst til að nefna sérstaklega það sem spurt var um varðandi lánsveðshópinn.

Við sem vorum í stjórnarandstöðu á síðasta kjörtímabili nefndum oft mikilvægi þess að koma til móts við þann hóp. Hins vegar verð ég að segja að það samkomulag sem síðasta ríkisstjórn gerði við lífeyrissjóðina fannst mér heldur slappt. Núverandi stjórnarandstaða, hv. þingmenn Samfylkingarinnar ekki hvað síst, hafa talað mikið um mikilvægi þess að aðgerðir til að koma til móts við heimilin leiði ekki til aukinna skulda ríkisins, lendi ekki á ríkinu. En hvaða leið var farin þegar samkomulag var gert við lífeyrissjóðina? Nánast allur kostnaðurinn, hátt í 90% kostnaðar, lendir á ríkinu á meðan lánveitandinn tekur eingöngu á sig það sem hann taldi að hefði hvort eð er kostað, umsýslan við það að ganga að fólki og breyta lánum eða taka eignir. Þetta finnst mér ekki nógu góð niðurstaða fyrir ríkið sem síðasta ríkisstjórn samdi um enda þótt sömu hv. þingmönnum sé nú tíðrætt um mikilvægi þess að leggja ekki auknar byrðar á ríkið.

Ég vona að þrátt fyrir sérkennilegar umræður á köflum, eins og ég hef rakið, verði það ekki til þess að menn standi gegn þessari þingsályktunartillögu. Það væri ekki í samræmi við þær yfirlýsingar sem forustumenn stjórnarandstöðuflokkanna gáfu áður en sumarþing kom saman.

Vonandi getum við haldið þessari vinnu óhikað áfram með stuðningi þingsins alls og vonandi mun svo þingið styðja þær aðgerðir sem hrint verður í framkvæmd í framhaldinu, aðgerðir byggðar á staðreyndum, á vel unninni og vel undirbúinni og útfærðri vinnu sem mun standast skoðun, standast fyrir dómstólum og þá sérstaklega standast þau sjónarmið sem voru svo ríkjandi fyrir síðustu kosningar, og eðlilega, þ.e. réttlætissjónarmiðin um mikilvægi þess að koma til móts við þá sem hafa verið vanræktir undanfarin ár.