aðgerðir vegna skuldavanda heimila á Íslandi.
Virðulegur forseti. Ekki var það að heyra fyrir kosningar að væntingar hv. þingmanna Samfylkingarinnar væru eins miklar og þeir vilja nú vera láta. Það hefði verið ágætt að þeir hefðu nefnt það fyrir kosningar að þeir gerðu gríðarlegar væntingar, tryðu á framsóknarmenn í skuldamálum. Það var nú eitthvað annað.
Þá var kvartað yfir því að menn ætluðu nýta tímann eftir kosningar til þess að útfæra hlutina með öðrum. Þá var það ómögulegt að menn skyldu ætla að taka sér tíma í það. Nú er látið eins og sú gagnrýni öll hafi aldrei verið sett fram, menn hafi bara haldið að þetta yrði gert á fyrsta degi án athugunar, þó að menn ítreki á sama tíma stöðugt mikilvægi þess að fara vel yfir hlutina, þá skammast þeir samt í sömu ræðum yfir því að ekki sé búið að framkvæma þá.
Það lá fyrir og var meginefni umræðu um þessi mál að þau þörfnuðust áframhaldandi vinnu, þau þörfnuðust útfærslu, menn þyrftu a.m.k. að geta nálgast upplýsingarnar sem leggja þarf til grundvallar. Og af því að hv. þingmaður vísar í að við bentum á það 2009 að þá væru til staðar útfærðar leiðir til þess að klára það sem þá var talað um sem 20% leiðréttinguna, þá er það alveg rétt, þær leiðir lágu fyrir þá. En eins og ég nefndi áðan var ráðist á útfærsluna þar í stað þess að rökræða þann möguleika sem þá var fyrir hendi en var því miður ekki nýttur, bönkunum var skipt upp í stað þess að nýta tækifærið sem gafst. Og af því að hv. þingmaður spurði sérstaklega um það í ræðu sinni og virðist ekki hafa tekið eftir því þó að ég hafi nú farið yfir það alloft á undanförnum fjórum árum þá var ætlunin með þeim tillögum þess tíma sú að færa öll fasteignalán, öll húsnæðislán yfir í Íbúðalánasjóð og nýta þá afskrift sem sannarlega var réttlætanleg og til staðar þar til þess að færa lánin almennt niður enda höfðu lántakendur þar eins og annars staðar orðið fyrir áhrifum af efnahagshruninu.