neytendalán.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um neytendalán, nr. 33/2013, um frestun gildistöku, sem hv. efnahags- og viðskiptanefnd leggur fyrir þingið.
Frumvarpið felur í sér tillögu um frestun á gildistöku laga um neytendalán frá 1. september 2013 til 1. nóvember 2013. Þessi tillaga er til komin vegna beiðni frá Samtökum fjármálafyrirtækja til innanríkisráðuneytis. Innanríkisráðuneytið hefur skoðað beiðnina og telur réttlætanlegt að fresta gildistöku laganna og kynnti þá afstöðu sína á fundi með efnahags- og viðskiptanefnd.
Nefndin var treg til frestunar og skipaði starfshóp til að skoða forsendur málsins. Starfshópinn skipuðu hv. þingmenn Helgi Hjörvar, Pétur Blöndal og Líneik Anna Sævarsdóttir. Starfshópurinn aflaði frekari gagna, m.a. í formi minnisblaðs gegnum innanríkisráðuneytið. Eftir að hafa skoðað rökin fyrir ósk um frestun lagði starfshópurinn til við nefndina að leggja til frestun gildistöku um tvo mánuði og féllst efnahags- og viðskiptanefnd á það, en leggur áherslu á að smíði reglugerða samkvæmt lögunum verði hraðað og að þær verði tilbúnar fyrir 1. september.
Í greinargerð segir:
Með frumvarpi þessu er lagt til að gildistöku laga nr. 33/2013, um neytendalán, verði frestað frá 1. september 2013 til 1. nóvember 2013. Lög nr. 33/2013 byggjast á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins en tilgangur hennar var að endurskoða reglur um neytendalán til að auka neytendavernd og tryggja samræmt lagaumhverfi við veitingu neytendalána.
Lög nr. 33/2013, um neytendalán, gilda um veitingu lána til neytenda í atvinnuskyni. Lánveiting telst í atvinnuskyni hvort sem um er að ræða aðal- eða aukastarfsemi.
Lögin gera ráð fyrir að lánveitandi veiti neytanda ítarlegar upplýsingar um lánssamning. Í öllum auglýsingum og kynningarefni um lánssamninga skulu tilteknar upplýsingar koma fram á skýran, hnitmiðaðan og áberandi hátt. Þá skal lánveitandi, með eðlilegum fyrirvara, veita neytanda nauðsynlegar upplýsingar til þess að hann geti borið saman ólík tilboð og tekið upplýsta ákvörðun um það hvort gera skuli lánssamning áður en neytandi er bundinn af samningi eða tilboði. Enn fremur er skylt að ákveðnar upplýsingar komi fram í lánssamningum. Framangreindar upplýsingar skulu koma fram í stöðluðu eyðublaði sem ráðherra setur reglugerð um.
Mikilvægt ákvæði er að finna í 10. gr. laga nr. 33/2013 sem fjallar um lánshæfis- og greiðslumat.
Rök fyrir frestun eru að sem fyrr segir felast í lögunum umtalsverðar breytingar sem óhjákvæmilega hafa í för með sér breytingar á útlánareglum, gerð skjala, lánaferlum og lána- og upplýsingakerfum, auk fræðslu fyrir starfsfólk fjármálafyrirtækja um efni laganna og breytt vinnubrögð.
Að undirbúningi að innleiðingu laganna kemur embætti ríkisskattstjóra sem vinnur nú að undirbúningi að gildistöku laganna, en gert er ráð fyrir auknu álagi á embættið við að útvega skattframtöl og launagreiðslur lánþega vegna greiðslumats.
Í lögunum er Neytendastofu falið hlutverk eftirlits- og framkvæmdaraðila. Og þá er í lögunum gert ráð fyrir að velferðarráðuneytið gefi út neysluviðmið.
Efnahags- og viðskiptanefnd hefur skoðað þær röksemdir sem fram hafa verið færðar fyrir frekari frestun á gildistöku laganna og telur í ljósi þess rétt að fresta gildistöku laganna til 1. nóvember 2013. Fyrir liggur að erfitt verður að undirbúa alla aðila fyrir 1. september þegar lögin áttu að öðlast gildi. Ef gildistökunni er frestað ætti að gefast ráðrúm til að undirbúa nýja framkvæmd neytendalána. Álit nefndarinnar er að frestur fram í nóvember gefi hlutaðeigandi aðilum nægilegan tíma til að ljúka þeim verkefnum sem enn er ólokið til að hægt sé að innleiða nýja heildarlöggjöf um neytendalán. Nefndin áréttar mikilvægi þess að allar reglugerðir er málið varða verði tilbúnar 1. september 2013. Þannig gefst framkvæmdaraðilum frestur til að aðlaga tölvukerfi, verkferla, eyðublöð og annað sem nauðsynlegt er fyrir gildistöku laganna. Einnig leggur nefndin áherslu á mikilvægi þess að flýta gildistökunni eins og kostur er og að allir hlutaðeigandi leggist á eitt í þeirri vinnu.
Meðfram frestun gildistöku felur frumvarpið í sér frestun á bráðabirgðaákvæði II í lögum nr. 121/1994, um neytendalán, sem fellur úr gildi 1. september að óbreyttu. Ákvæði þetta er hugsað þannig að gildistími þess haldist í hendur við gildistöku laga nr. 33/2013. Því er lagt til að gildistími ákvæðisins verði lengdur til 1. nóvember næstkomandi.