142. löggjafarþing — 16. fundur,  28. júní 2013.

lengd þingfundar.

[11:04]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa um lengd þingfunda er það tillaga forseta að þingfundur geti staðið lengur í dag en hvað þingsköp kveða á um. Er óskað atkvæðagreiðslu um þessa tillögu þingforseta? (Gripið fram í: Já.) Óskað er eftir atkvæðagreiðslu og verður gengið til atkvæðagreiðslu.