veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágæta ræðu hans. Það var kannski ályktunin sem var nokkuð erfitt að átta sig á. Nú er það þannig að í íslenskum sjávarútvegi er meiri hagnaður í ár en nokkru sinni fyrr í Íslandssögunni. Framlegðin í greininni nálgast það að vera 100.000 milljónir. Hér kemur hv. þingmaður og vekur athygli á því sem ég vissi ekki, og er ákaflega góð ábending í þessa umræðu, að FAO sé að spá því að á næstu átta árum verði 15–18% raunhækkun á verðinu á fiskinum án þess að kostnaður við að sækja muni hækka að sama skapi. Gangi þær spár eftir er allar líkur á því að á næstu átta árum muni hagnaðurinn í sjávarútvegi enn aukast og verða enn meiri og þá er það ályktun stjórnarmeirihlutans að rétt sé að lækka gjaldið. Hvernig hangir þetta saman, virðulegur forseti? Þegar hagnaðurinn er meiri en nokkru sinni fyrr í sögunni, þegar bullandi verðhækkanir virðast vera fram undan næstu átta árin til hagsbóta fyrir greinina þá á ekki að hækka gjaldið heldur lækka það. Það er nokkuð skrýtin rökfræði fyrir mér. Mér sýnist að verið sé að lækka gjaldið úr 34 kr. á kíló niður í 17 kr.
Ég spyr hv. þingmann: Heldur hann að það sé einhver aðili í heiminum sem væri ekki tilbúinn til þess að veiða þorsk á Íslandsmiðum ef hann þyrfti ekki að borga nema 34 kr. fyrir hvert kíló sem hann veiddi?