veiðigjald.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Helga Hrafni Gunnarssyni fyrir mjög áhugaverða ræðu um það málefni sem hér er til umfjöllunar. Ég tók eftir því að í ræðu sinni ræddi hann talsvert mikið um aðkomu þjóðarinnar að ákvörðunum, bæði í þessu máli og ýmsum öðrum, og ég veit að þingmaðurinn og sú stjórnmálahreyfing sem hann er fulltrúi fyrir á þinginu ræddi mjög mikið einmitt um aukna möguleika á beinu lýðræði og hefur barist fyrir því. Ég fagna því.
Í umræðunni um þetta mál hafa komið upp ýmis sjónarmið. Við höfum heyrt einstaka ráðherra, ég held bæði hæstv. forsætisráðherra og hæstv. sjávarútvegsráðherra, tala um að það gæti vel komið til álita að það frumvarp sem við erum hér að fjalla um færi í þjóðaratkvæðagreiðslu en á hinn bóginn tala þeir um að þetta mál henti ekki mjög vel til þjóðaratkvæðis. Við könnumst við það að forseti lýðveldisins, sem eftir okkar stjórnskipun í dag hefur möguleika á að vísa málum í þjóðaratkvæðagreiðslu eins og dæmin sanna, hafði í umfjöllun um þetta mál á síðasta ári lýst þeirri skoðun sinni að það hentaði vel til þjóðaratkvæðagreiðslu.
Mig langar að inna hv. þingmann eftir afstöðu hans til þess hvort þetta mál sé vel til þess fallið að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu eða ekki út frá efni þess og út frá því að auðvitað eru hér á ferðinni ákveðnar tæknilegar útfærslur. Mig langar að heyra sem sagt sjónarmið þingmannsins til þess hvort það gæti verið bæði heppilegt, málið sjálft, og æskilegt að þetta mál færi í þjóðaratkvæðagreiðslu með hvaða hætti svo sem því yrði komið þangað.