142. löggjafarþing — 18. fundur,  1. júlí 2013.

veiðigjald.

15. mál
[17:26]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Það má spyrja 34 þús. undirskrifara hvort þetta eigi heima í þjóðaratkvæðagreiðslu eða ekki. Fyrir mig persónulega er það í reynd nóg en úr því að hv. þingmaður víkur að tæknilegu atriðunum er í raun og veru lítið að segja um tæknilegu útfærsluna fyrr en fólk hefur fundið með sér að það hafi eitthvað að segja um málið.

Segjum að forseti lýðveldisins mundi neita að skrifa undir, þá yrði fréttin sú að þetta færi í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þá fyrst mundi myndast sá þrýstingur sem þyrfti til til að umræðan næði því stigi að hægt væri að tala um það sem er kallað tæknileg atriði með viðunandi hætti. Að því sögðu skal ég viðurkenna að eins og það er núna er það ekki mjög heppilegt til umræðu vegna þess að enginn hefur séð sér neinn hag í því að kynna sér þessi tæknilegu atriði. Það er vegna þess að fólk hefur ekkert val, það hefur ekkert um málið að segja. Það hefur bara þennan eina bókstaf eftir fjögur ár — og til hvers? Til hvers ætti venjulegur maður úti í bæ núna að fara að kynna sér muninn á botnsjávarfiskum og uppsjávarfiskum og öllu þessu? Hann hefur enga ástæðu til þess.

Það er ekki fyrr en ákvörðunin er lögð í hendur þjóðarinnar sem þjóðin fær raunverulega ástæðu til að kynna sér málin þannig að lýðræðið verði virkara og umræðan að öllu leyti betri.