142. löggjafarþing — 18. fundur,  1. júlí 2013.

veiðigjald.

15. mál
[20:24]
Horfa

Össur Skarphéðinsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Mér fannst hv. þingmaður lesa ljóðið vel og segi að þó að oft hafi ég heyrt menn fara með ljóð úr ræðustól Alþingis þá hef ég fáa heyrt fara jafn vel með ljóð og hv. þingmann sem væntanlega er ljóðskáld. Hún ætti eiginlega að gera það miklu oftar að gleðja okkur hér á síðkvöldi með því að lesa ljóð sín og annarra.

Ég ætla að renna töluvert sömu slóð og hv. þm. Árni Þór Sigurðsson. Mér finnst dálítið merkilegt hvað píratar festa sig í það hvort herra forseti, þ.e. forseti lýðveldisins, sé hér á landinu eða ekki. Ég held að hægt sé að fá mjög grandgóðar upplýsingar um ferðir hans með því að lesa heimasíðu hans. Mér finnst liggja í þessu eins og forseti Íslands sé ekki ærlegur gagnvart þjóðinni í þessu máli.

Margt má um forseta Íslands segja og ekki hef ég alltaf verið honum sammála, en eitt hljóta þó allir sem fylgst hafa með ferli hans að geta verið sammála um; að hann er ekki deigur, hann flýr ekki undan áraun. Ég held að það sé algerlega fjarstæðukennt að láta að því liggja, eins og mér fannst hv. þingmaður gera, að hann væri á flótta undan þessu máli. Ég get fullvissað hana um að forseti Íslands mun ekki skirrast við að taka sína ákvörðun ef það er sannfæring hans. Um það get ég hins vegar ekkert sagt.

En ég vil hins vegar taka undir með hv. þingmanni, sem undir lok ræðu sinnar og í andsvörum hér áðan reifaði það, sem er auðvitað mjög í anda okkar anarkista og pírata, að fara þá leið að þingið samþykki einfaldlega tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu. Hvers vegna ekki? Það er alveg hárrétt sem hv. þingmaður segir, að það er vaxandi byr í samfélaginu, ekki bara á Bessastöðum heldur annars staðar í samfélaginu líka, til að fara þá leið. Eitt af því sem við vorum að slást um varðandi stjórnarskrána var akkúrat það að búa til farveg þar sem fólk gæti krafist slíkrar atburðarásar. Og hvers vegna ekki að samþykkja það og fara þá leið? Þá er alltaf eftir (Forseti hringir.) sá neyðarhemill sem 26. gr. stjórnarskrárinnar er.