142. löggjafarþing — 19. fundur,  2. júlí 2013.

störf þingsins.

[13:35]
Horfa

Brynhildur S. Björnsdóttir (Bf):

Virðulegi forseti. Það er mér sönn ánægja að fá að ávarpa þingið í fyrsta sinn. Nú nýverið gerðu þingmenn Evrópuráðsins alvarlegar athugasemdir við skipan Íslandsdeildar á sumarþingi ráðsins sem fram fór í liðinni viku, reyndar svo alvarlegar að þingskapa- og stofnananefnd ráðsins setti fram tillögu um refsiaðgerðir sem fela í sér að taka eigi atkvæðarétt deildarinnar á næsta þingi ef ekki verður búið að laga samsetningu nefndarinnar í haust.

Við vorum réttilega sökuð um að hafa brotið reglur um kynjakvóta sem kveða á um að sendinefndir einstakra þjóðþinga skuli vera skipaðar konum í a.m.k. sama hlutfalli og viðkomandi þjóðþing eða a.m.k. einni konu. En eins og við vitum þá eru þrír karlar í Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins og það vekur heimsathygli að engin kona sé aðalmaður í nefndinni.

Þess vegna langar mig að spyrja hv. þingmann og formann Íslandsdeildar Evrópuráðs, Karl Garðarsson, eftirtalinna spurninga:

Var hv. þingmanni ljóst að verið væri að brjóta reglur Evrópuráðs um kynjakvóta í nefndinni áður en lagt var af stað?

Eins langar mig að spyrja: Hvað olli því að sú ákvörðun var tekin þrátt fyrir að vitað væri að það væri alvarlegt brot á reglum ráðsins?

Enn fremur langar mig að vita hvort hv. þingmaður hafi í hyggju að leiðrétta þetta fyrir haustþingið og þá hvaða vinna sé í gangi í þeim efnum nú þegar, eða megum við eiga von á því að verða okkur aftur til skammar í þessum efnum á alþjóðlegum grundvelli og jafnvel að tapa atkvæðarétti á jafn mikilvægum vettvangi og þing Evrópuráðsins er?