Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.
Herra forseti. Hér kemur inn á stutt sumarþing eitt af megináherslumálum núverandi ríkisstjórnar, breytingar á stjórnarfyrirkomulagi Ríkisútvarpsins. Frumvarpið kemur hingað inn lítt grundað, lítt undirbúið í raun eins og nefndarálit meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar ber með sér sem er ekkert annað en uppáskrift á greinargerð með frumvarpinu.
Þessi breyting kemur í kjölfar breytinga á lögum um Ríkisútvarpið sem voru samþykktar hér á vormánuðum. Þær breytingar byggðu á löngum og vönduðum undirbúningi og vel ígrunduðu máli sem átti breiðan stuðning í þinginu, meðal annars fyrir tilstilli Framsóknarflokksins. Framsóknarflokkurinn studdi málið og stóð að nefndaráliti.
Margir hv. þingmenn Framsóknarflokksins, sem hér sitja, studdu málið og greiddu atkvæði með því: hæstv. utanríkisráðherra, hæstv. sjávarútvegsráðherra, hv. þm. Ásmundur Einar Daðason, þáverandi varaformaður flokksins, Birkir Jón Jónsson, og þáverandi þingmaður, Siv Friðleifsdóttir. (Forseti hringir.) Framsóknarflokkurinn hefur kosið að skila algerlega auðu í þessari umræðu hér og atkvæðaskýring hv. þm. Höskuldar Þórhallssonar breytir þar engu um. (Forseti hringir.) Ég kalla eftir skýringu formanns Framsóknarflokksins á viðsnúningi hans í málinu.