Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.
Hæstv. forseti. Ég styð þetta mál. Eftir að málið verður samþykkt í þinginu, sem ég bind sterkar vonir við að verði gert, munum við hafa það þannig hér eftir sem hingað til að Alþingi beri ábyrgð á því að tilnefna stjórnarmenn.
Það hefur margoft komið fram að mikilvægt er að það sé skýrt hverjir beri ábyrgð í samfélagi okkar. Það kom meðal annars fram í þeirri skýrslu sem kom út í gær að það að eftirlit með Íbúðalánasjóði hafi ekki verið nægilegt og því hafi farið hrakandi hafi meðal annars haft með það að gera að Alþingi afsalaði sér aðkomu að því að tilnefna í stjórn Íbúðalánasjóðs. Hér er komin enn ein ástæða fyrir því að samþykkja þetta ágæta mál.