142. löggjafarþing — 21. fundur,  3. júlí 2013.

þingsköp Alþingis.

30. mál
[19:56]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg):

Frú forseti. Það er rétt, sem fram kom í máli hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra, að aðdragandi þessa máls er sá að hann og síðar hæstv. forsætisráðherra áttu samtöl við okkur formenn stjórnarandstöðuflokkanna til að leita leiða og lausna í þeim aðstæðum sem hæstv. fjármálaráðherra telur óvæntar og hafa skapast nú, svo að ég vitni í orð hæstv. ráðherra.

Ég tel að við formenn stjórnarandstöðuflokkanna höfum skoðað þetta mál með opnum huga og nefndar voru nokkrar leiðir sem unnt væri að fara til að koma til móts við aðstæður sem ég tel reyndar ekkert sérstaklega óvæntar, í ljósi þess að kosningar voru löngu boðaðar, í ljósi þess að gerðar hafa verið breytingar á þingsköpum sem öllum eru kunnar og í ljósi þess að við vitum að stjórnarmyndun getur alltaf tekið nokkurn tíma en við vitum að samt þarf alltaf að leggja fram fjárlagafrumvarp.

Fyrst vil ég segja að ég hefði fremur viljað horfa til annars konar breytinga. Eitt hefði til að mynda verið að fresta því að tekjuöflunarfrumvörp yrðu lögð fram um leið og fjárlagafrumvarp. Ekki var vilji til þess. Í öðru lagi hefði ég talið betri brag á því fyrir þingið að fresta þingsetningardeginum um færri daga, vera ekki að fresta þessu þingi og efna til haustþings, eða svokallaðs stubbs, en hefja þá þinghald eitthvað síðar í september. Í ljósi þess að þessi sjónarmið mættu ekki miklum skilningi mun ég ekki styðja þetta frumvarp. Þó að ég hafi tekið því vel, í anda lausnamiðaðra stjórnmála, að málið verði lagt fram og tekið til afgreiðslu vil ég að það sé algerlega ljóst að ég styð málið ekki og fyrir því eru nokkrar ástæður.

Í fyrsta lagi höfum við átt miklar samræður á vettvangi þingsins um þingsköpin á undanförnum árum. Ástæður þess og rökin fyrir því að þingsetningardagurinn var færður fram á sínum tíma, þó að ekki sé neitt sérstaklega langt síðan, eru mjög góð og gild. Ef við viljum vanda til fjárlagagerðarinnar og tryggja hlutverk Alþingis þegar kemur að því stóra máli er mjög mikilvægt að Alþingi fái tíma til að fást við fjárlögin. Það var ein af ástæðunum fyrir því að þingsetningardagurinn var færður framar og framlagning fjárlagafrumvarpsins var færð framar og það er líka ástæðan fyrir því að ákveðið var að færa tekjuöflunina framar, það var að Alþingi fengi tíma til að fást við þetta mikilvæga mál og gæti vandað sig.

Við þekkjum að oft hefur orðið mikið span við vinnslu fjárlaga á haustmánuðum og ekki síst þegar málin voru enn í þeim furðulega farvegi að verið var að sækja um stórar og smáar upphæðir. Sem betur fer var snúið af þeirri leið og það er umræða sem við hæstv. fjármálaráðherra munum væntanlega eiga í haust, þ.e. hvort við erum ekki sammála um að halda eigi áfram því vinnulagi sem tekið var upp á síðasta kjörtímabili hvað varðar vinnu fjárlaganefndar og þær umsóknir sem teknar voru fyrir af hálfu fjárlaganefndar. Ef þetta frumvarp verður samþykkt þarf forsætisnefnd þingsins að skoða það mjög alvarlega hvort ástæða sé til að lengja þinghald á haustönn allt fram að jólum og fram að áramótum ef Alþingi þarf meiri tíma til að fara yfir fjárlög og tekjuöflun.

Auðvitað skýtur það skökku við, án þess að ég ætli eitthvað langt inn í þá umræðu — ég get skilið að erfitt sé að koma saman fjárlögum, ég hef staðið í þeirri vinnu í fjögur ár og veit að það er ekki létt verkefni. En þegar á sama tíma er staðið að því að skerða tekjur ríkisins — eins og við í minni hreyfingu, og margir aðrir í stjórnarandstöðuflokkunum, höfum bent á, í umræðum um veiðigjöld og í umræðum um virðisaukaskatt af ferðaþjónustu, er verið að hleypa fjárlögum yfirstandandi árs í uppnám sem og fjárlagagerð fyrir næsta ár. Það er því ekkert skrýtið að menn þurfi meiri tíma fyrir utan að verkefnið er ekki létt fyrir.

En gott og vel. Ég féllst á að þetta mál yrði lagt fram. Mér finnst mikilvægt að hugað sé að því hver tími þingsins eigi að vera til að vinna að fjárlögum og tekjuöflun í hinn endann. Mér finnst líka mikilvægt að sett verði á laggirnar þingskapanefnd. Eins og hv. þm. Árni Þór Sigurðsson kom að í andsvari sínu áðan er mjög mikilvægt að við áttum okkur á því — og fáum afstöðu hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra til þess, og auðvitað hæstv. forsætisráðherra sem hér ætti að vera að mæla fyrir málinu, en er hér ekki — hvort þeir eru okkur ekki sammála um að eðlilegt sé að sú nefnd sé leidd í sameiningu af fulltrúum stjórnarflokka og þeirra flokka sem eru í minni hlutanum. Það er ekki góður bragur á því að við séum á sumarþingi að breyta þingskapalögum og setja inn einskiptisbráðabirgðaákvæði til að færa til þingsetningardag. Færð hafa verið rök með og á móti og ég ítreka að mín skoðun er sú að aðrar leiðir hefðu verið betri til að mæta þeim sjónarmiðum sem hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fór yfir í máli sínu. En í ljósi þessa, sem ég get ekki fallist á að séu óvæntar aðstæður eða aðstæður sem hafi skapast úr tóminu eins og gefið var í skyn áðan, finnst mér mjög mikilvægt, ef hæstv. ráðherrar eru þeirrar skoðunar að þetta sé aðkallandi vandamál, að þingskapanefnd verði þá sett á laggirnar, að fulltrúar stjórnarandstöðunnar komi að forustu þeirrar nefndar ásamt fulltrúum stjórnarflokkanna og reynt verði að koma reglu á málin á nýjan leik. Því að þó að þetta sé einskiptisbráðabirgðaákvæði þá hefur það ákveðið fordæmisgildi.

Ég hef ekki jafn mikla þingreynslu og hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra en hef nú samt verið hér í sex ár. Hugsunin á bak við alla þá endurskoðun þingskapalaga sem átt hefur sér stað á þeim tíma hefur einmitt verið sú að koma á aukinni festu og aukinni reglu í þingstörfum og var ekki vanþörf á. Tilraunir til að setja á septemberþing, eða svokallaðan stubb, þóttu ekki takast vel þannig að mér finnst ekki góður bragur á því að verið sé að setja á það einskiptisákvæði að aftur verði horfið til þess að setja stubb. Ég er vissulega sammála því sjónarmiði og hef viðrað þá skoðun að það er líka mjög undarlegt ef við hættum hér og nú og setjum svo þing aftur 1. október og setjum þingið í frí í þrjá mánuði, í ársfjórðung. Ég held að meira að segja þeim sem finnst gaman í fríi finnist það frí fulllangt.

Auðvitað er eðlilegt að hafa þinghald í september. Það er ekki góður bragur á þessu þannig að ég legg áherslu á að skipuð verði þingskapanefnd og sátt náist um hvernig við ætlum að haga þingstörfum og það verði þá regla á þeim. Þetta eru ekki vinnubrögð til fyrirmyndar og ég tel þetta mál satt best að segja allt hið vandræðalegasta.